siglingavernd.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar sitt. Það er rétt, ekki er gert ráð fyrir að breytingarnar hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. Það er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt. Við munum finna næg deiluefni á þessu vorþingi geri ég ráð fyrir en þetta er alveg örugglega ekki eitt af þeim. [Hlátur í þingsal.] Við værum illa stödd ef þetta væri tekið fyrir, þetta litla hafnaraðstöðufrumvarp. Ég held að það sé ekki málið og ég vonast til þess að önnur frumvörp sem lúta að EES-samningnum hvað varðar innleiðingu séu vönduð og rétt þýdd og að við gerum ekki mistök, og ef við gerum mistök og ef einhvers staðar þarf að laga þá fái það skjóta afgreiðslu í þinginu ef við ætlum að uppfylla skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum. Við munum ekki, ég ítreka, ekki ganga inn í Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn. Það er sjálfstæð ákvörðun. Þar sem ég er stuðningsmaður EES-samningsins þá vil ég að sjálfsögðu að við fylgjum samningsskuldbindingum okkar þar. Það er mjög mikilvægt. Það er tekið tillit til þess að við erum fullvalda ríki í EES-samningnum, við erum með stjórnskipulegan fyrirvara o.s.frv. varðandi mál sem hingað koma. Þessi stjórnskipulegi fyrirvari hefur aldrei verið notaður áður. Ég vísa í skýrslu Orkunnar okkar, þar skrifaði ég sérstaklega um þetta. Þegar við beitum okkar stjórnskipulega fyrirvara, hvað gerum við þá? Jú, þá höfnum við innleiðingu, að hluta til eða öllu leyti og sendum málið aftur upp í sameiginlegu nefndina þar sem samningaviðræður fara fram. Þá er skylda ríkisins að það sé samræmi við þá löggjöf sem á að innleiða. Það er ekki verið að segja að við ætlum að gera hlutina allt öðruvísi. Það er grundvallaratriði. Ég tel mjög mikilvægt að við sem eyja í Norður-Atlantshafi gætum að sérstöðu okkar, sérstaklega varðandi löggjöf sem fjallar eingöngu um og lýtur eingöngu að hagsmunum meginlands Evrópu. Þar getum við sem dæmi tekið raforkuviðskipti yfir landamæri. Við seljum enga raforku yfir landamæri og eigum ekki að gera það. Við eigum ekki að innleiða löggjöf af fullum krafti varðandi skipaskurði, járnbrautir eða annað sem lýtur að hagsmunum meginlandsins. Meira að segja líka, og það varðar mitt ráðuneyti, sem lýtur að sköttum á flugfélög, loftferðir. Við eigum líka að gæta hagsmuna okkar í því atriði og ég get nefnt það sem dæmi að Spánn fékk betri samning fyrir Kanaríeyjar heldur en Ísland. (Forseti hringir.) Þar fengum við sama samning eða sömu kjör og Kýpur og Malta en ekki Kanaríeyjar.