þingmál ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Mér finnst ágætt að koma hingað og taka til máls svona rétt til að undirstrika það hversu mjög þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru búnir að gleyma því í hvers konar stjórnarsamstarfi þeir voru undanfarin sjö ár. Það að það sé einhver áherslumunur á milli stjórnmálaflokka hér á Íslandi er ekki nýtt. Það að myndaðar séu samsteypustjórnir hér á Íslandi er ekki nýtt. Það að lagðar séu fram þingmálaskrár og skrifaðir stjórnarsáttmálar flokka sem eru ekki sammála um alla hluti er ekki nýtt. Þetta er reyndar viðvarandi ástand sem við bjuggum við á hverjum einasta degi hér í þessu ræðupúlti Alþingis að stjórnarflokkar voru ekki sammála, rifust opinberlega. Hér er hins vegar að taka við ríkisstjórn sem gengst við því að menn eru ekki nákvæmlega sammála um alla hluti og það er bara akkúrat ekkert að því. (Gripið fram í.) Eru menn raunverulega, þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem eyddu síðustu sjö árum í það að rífast við samstarfsflokkana um stórt og smátt daginn út og inn, að gera einhverjar athugasemdir við það að það sé ekki fullkominn samhljómur í öllu sem sagt er úr þessum ræðustól af hálfu nýrrar ríkisstjórnar sem gengst við því að vera samsett af þremur flokkum, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur sérhæft sig í gegnum lýðveldissöguna að eiga samstarf við aðra flokka sem þeir eru ekki endilega sammála um alla skapaða hluti?