Störf þingsins.
Hæstv. forseti, hæstv. ráðherrar og hv. alþingismenn. Ég saknaði þess í stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra á mánudag að ekki skyldi þar vera vikið einu einasta orði að alvarlegri stöðu íslenskrar tungu í okkar daglega lífi. Við finnum að hið opinbera mál okkar Íslendinga víkur á sífellt fleiri sviðum fyrir ensku. Mjög víða þykir enska raunar sjálfsagt mál, hvort sem það er í verslun eða þjónustu eða jafnvel í enskumælandi ráðum í íslenskri stjórnsýslu. Hér á Íslandi hefur á undanförnum árum verið slegið heimsmet í ófullnægjandi árangri aðfluttra við að læra tungumálið í nýju heimalandi. Aðeins 18% hafa tileinkað sér tungumálið hér á meðan samanburðarlönd státa flest af hátt í 60% árangri í sama flokki. Á sama tíma hefur íbúasamsetning landsins gjörbreyst á tveimur áratugum með nær óheftum innflutningi vinnuafls sem ég veit vel að flestir hér hafa sagt alveg nauðsynlega en ég held þó að fæstir geri sér grein fyrir umfangi þessara breytinga. Ef við tökum aldursbil 30–39 ára eru 38% íbúa landsins nú með erlent ríkisfang. Á þessu aldursbili eru 38% íbúa landsins útlenskir. Maður skyldi halda að svo róttæk breyting myndi vekja áhuga hæstv. ráðherra, hæstv. forsætisráðherra og annarra hv. þingmanna í nýrri ríkisstjórn. Maður skyldi halda að nú færu menn að boða trúverðuga stefnu í stað vítaverðs stefnuleysis.
Forseti. Það er mikill heiður að vera kjörinn á Alþingi á þessum umbrotatímum um víða veröld. Um leið er ábyrgð okkar mikil. Hér mega okkur ekki verða á mistök sem við getum ekki dregið til baka.