156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Þrátt fyrir háleit markmið stjórnvalda um að framkvæmdir við ein jarðgöng séu í gangi á hverjum tíma hefur ríkt kyrrstaða í gerð jarðganga á Íslandi í hartnær fimm ár. Forsenda áframhaldandi verðmætasköpunar, sem er undirstaða velferðarríkisins Íslands, er viðhald og áframhaldandi fjárfesting í samgönguinnviðum, þar með talið jarðgöngum. Þessa kyrrstöðu verður að rjúfa og það verður ekki gert nema við förum að hugsa út fyrir boxið. Það er nefnilega merkilegt að sjá að á meðan hér hefur ekki verið stungið niður skóflu í fimm ár þá eru frændur okkar og nágrannar, Færeyingar, á fullri ferð að tengja eyjarnar saman með jarðgöngum. Hvernig stendur á því að 55.000 manna þjóð getur byggt hver jarðgöngin á fætur öðrum á meðan hér á Íslandi hreyfist ekki neitt? Jú, frændur okkar hugsuðu út fyrir boxið. Í Færeyjum er sérstakt gangafélag, Tunnil partafelag, sem er í opinberri eigu. Þetta félag heldur utan um allan rekstur jarðganga í Færeyjum ásamt því að bjóða út og fjármagna framkvæmdir. Samkvæmt mínum upplýsingum eru jarðgöng í Færeyjum mikið til fjármögnuð með hagstæðum lánum frá erlendum lífeyrissjóðum. Lánin eru til 60–80 ára og það er gjaldskylda í öll göng og einn passi gildir fyrir þau öll.

Virðulegur forseti. Á komandi vikum mun ég leggja fram þingsályktunartillögu þar sem ég skora á Alþingi Íslendinga og ráðherra samgöngumála að skoða alvarlega stofnun jarðgangafélags Íslands að fyrirmynd Færeyinga. Með nýrri nálgun getum við rofið kyrrstöðuna.