Störf þingsins.
Frú forseti. Þann 20. janúar síðastliðinn fæddist drengur á Seyðisfirði og voru fluttar fréttir af því í öllum helstu miðlum landsins. Af hverju þótti þessi tiltekna fæðing barns fréttnæm? Jú, vegna þess, virðulegi forseti, að þetta var í fyrsta skipti í rúm 32 ár sem barn fæðist á Seyðisfirði og eingöngu um heppni að ræða í því ófremdarástandi sem ríkti vegna veðurs á svæðinu, og hluti Seyðisfjarðar rýmdur, að ljósmóðir sem reyndar hefur hætt störfum er búsett á Seyðisfirði. Í frétt sem birtist samdægurs kom fram að allt hefði sem betur fer farið vel að lokum og að móður og barni heilsaðist vel og sendi ég þeim mínar hamingju- og velfarnaðaróskir. Í bókun um samgöngumál á Austurlandi frá stjórnarfundi 31. janúar sem Samband sveitarfélaga á Austurlandi sendi Þingmönnum Norðausturkjördæmis segir, með leyfi forseta:
„Í ljósi þess ástands sem skapaðist 19.–20. janúar á Seyðisfirði, þegar íbúar lokuðust inni í firðinum vegna ófærðar á sama tíma og rýma þurfti stór svæði í bænum vegna snjóflóðahættu, telur stjórn SSA rétt að minna á ályktun sína frá haustþingi 2024 þar sem lögð var áhersla á að ríkisvaldið standi við fyrirheit um öruggt og greiðfært vegakerfi innan landshlutans. Við þessar aðstæður fæddi kona barn á Seyðisfirði í fyrsta skipti í 32 ár. Aðstæður voru mjög ótryggar þar sem eina leiðin burt úr firðinum var með varðskipi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt ástand skapast á Austfjörðum og er skemmst að minnast þess þegar snjóflóð féllu í Neskaupstað árið 2023. Mikilvægt er að stjórnvöld hefji framkvæmdir hið fyrsta við að tengja Austurland saman sem eitt svæði en Fjarðarheiðargöng eru tilbúin til útboðs og eru fyrsti áfanginn í þeirri gangaframkvæmd sem þarf að fara í til að tryggja að allir Austfirðingar komist með öruggum hætti á Fjórðungssjúkrahús í Neskaupstað og í sjúkraflug frá Egilsstaðaflugvelli. Eingöngu með hringtengingu samgangna verður fjölkjarnasamfélagið Austurland að einu atvinnu- og þjónustusvæði sem getur vaxið áfram á eigin forsendum og verðleikum.“
Ég tek heils hugar undir hvert einasta orð frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi og skora á þingheim, og þá sérstaklega nýja ríkisstjórn og nýjan samgönguráðherra, að setja þessar mikilvægu framkvæmdir á dagskrá sem fyrst. Austfirðingar hafa beðið of lengi.