Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Sala hugverkaréttinda nýsköpunarfyrirtækisins Kerecis á Ísafirði til móðurfélagsins Coloplast fyrir rúmlega 180 milljarða kr. hefur vakið verðskuldaða athygli. Sala þessara hugverkaréttinda skilar ríkissjóði um 40 milljarða kr. tekjum og er skýr áminning um mikilvægi nýsköpunar fyrir íslenskt efnahagslíf. Hún varpar líka ljósi á mikilvægi Vestfjarða fyrir þjóðarbúið og nauðsyn þess að styðja við innviðauppbyggingu á svæðinu. Saga Kerecis sýnir hvernig nýsköpun getur skapað umtalsverð verðmæti fyrir samfélagið og að Vestfirðir geta leikið lykilhlutverk í þróun hugverka og líftækniiðnaðar á Íslandi. Það er hins vegar eins með þennan geira og aðra, að án góðra samfélagslegra innviða fá þeir ekki blómstrað að fullu. Vestfirðingar hafa sett fram hugmyndir um sérstakan samgöngusáttmála fyrir Vestfirði, svokallaða Vestfjarðalínu. Gróft mat á kostnaði við þær samgöngubætur, sem eru aðallega jarðgöng, sex ef ég hef talið rétt, er um 84 milljarðar kr. Í fjórðungnum eru mikil tækifæri í sjávarútvegi, fiskeldi, ferðaþjónustu og hvers kyns nýsköpun. Hins vegar hefur innviðaskortur staðið í vegi fyrir frekari uppbyggingu og efnahagslegri þróun og tækifæri hafa glatast. Samgöngur eru sérstaklega veikur hlekkur þar sem vegakerfið er ekki í samræmi við þarfir nútímasamfélags. Það er því skoðunarvert, virðulegur forseti, að líta til þessara nýju skatttekna sem a.m.k. hluta mögulegrar fjármögnunar fyrir nauðsynlegar vegabætur og innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. Uppgangur síðustu ára í hinum ýmsu greinum hefur aukið skattspor Vestfirðinga verulega. Greining KPMG, sem þeir gerðu fyrir Innviðafélag Vestfjarða fyrir örfáum mánuðum, leiddi í ljós að atvinnulífið skilaði 40 milljörðum kr. á árunum 2019–2022. Einungis 2% þjóðarinnar búa á Vestfjörðum, sem sýnir okkur hvað lítill og fámennur landshluti getur skilað miklu fyrir þjóðarbúið. Og það segir okkur líka eitt, að það sem er gott fyrir Vestfirði er gott fyrir þjóðarbúið.