Störf þingsins.
Forseti. Mig langar að ræða um skipulagða brotastarfsemi og helstu birtingarmyndir hennar hér á landi. Svo vill til að ég hef undanfarin ár stýrt rannsóknarsviði hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þar sem m.a. eru til rannsóknar mál er varða grun um skipulagða brotastarfsemi. Þau frumbrot sem einkum eru til rannsóknar hér á landi eru innflutningur og dreifing fíkniefna. Sú háttsemi er alls staðar í Evrópu og víðar í veröldinni talin vera sá afbrotamarkaður sem mestum fjármunum veltir. Skipulögð brotastarfsemi getur átt við um fleiri brotaflokka en fíkniefni og er þar fyrst til að taka mansal. Töluverð aukning hefur orðið í fjölda mála þar sem grunur um mansal er til rannsóknar, bæði vegna frumkvæðisrannsókna lögreglunnar en einnig hefur tilkynningum um mansal fjölgað.
Frú forseti. Það er m.a. áskilið í því ákvæði almennra hegningarlaga er varðar skipulagða brotahópa að sú háttsemi geti heyrt undir ákvæðið að brotin séu drýgð í ávinningsskyni. Leiðir það hugann að peningaþvætti og endurheimt ólögmæts ávinnings. Það er mikilvægt í baráttu við skipulagða brotastarfsemi að fjármál brotahópanna séu rannsökuð og eftir atvikum haldlagður ávinningur sem grunur leikur á að sé afrakstur starfsemi skipulagðra brotahópa. Svo það sé sett í samhengi þá er talið að haldlagning nemi um 2–3% af ólögmætum ávinningi brotastarfsemi Evrópu og endanleg upptaka í dómi er enn lægra hlutfall.
Frú forseti. Netbrot eru efni í aðra umræðu en þó vil ég nefna það að frá því á Covid-tímum hafa skipulagðir brotahópar gert sig gildandi við alls kyns netsvik og það er sú tegund brota sem mest aukning er í. Sem kunnugt er hefur nýr hæstv. dómsmálaráðherra tiltekið sérstaklega að hún og ríkisstjórnin vilji beita sér sérstaklega gegn skipulagðri brotastarfsemi, m.a. með fjölgun lögreglumanna og er það fagnaðarefni.
Það er engin sérstök ástæða til þess að mála stöðu er varðar skipulagða brotastarfsemi hér á landi of dökkum litum og þó að við fylgjumst með fréttum af Norðurlöndunum, einkum frá Svíþjóð þar sem við blasir alvarleg staða er varðar skipulagða brotahópa, þá eigum við ekki við sambærilegan vanda að stríða hér á landi. Við skulum þó gæta þess að við nálgumst ekki slíkt ástand meira en orðið er.