156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er sannur heiður að stíga í ræðustól Alþingis í fyrsta sinn og vil ég þakka fólkinu í landinu fyrir traustið. Ég heiti því að nota rödd mína og áhrif til að bæta lífsgæði og auka tækifæri landsmanna allra og vinna þjóðinni til heilla. Ég hef mestallan minn starfsferil hingað til unnið að málefnum ungs fólks. Ég hef starfað í forvarnamálum, í félagsmiðstöðvum, fyrir íþróttahreyfinguna og í bæjarstjórn síðastliðin tíu ár, en í öllum mínum störfum hef ég sett það í forgang hvernig ég get unnið að velferð og auknum tækifærum fyrir ungt fólk til að blómstra á eigin forsendum og ná árangri í lífinu. Ég heiti því að halda áfram að beita mér fyrir málefnum barna og ungmenna hér á Alþingi en ég er afar stoltur af því að tilheyra stórum jafnaðarflokki sem leiðir ríkisstjórn sem hefur sameinast um þau grunngildi að standa vörð um almannahag og auðvelda fólkinu í landinu að ná árangri í sínu lífi, sama hvaða stöðu eða stétt þau tilheyra.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstv. forsætisráðherra, forgangsraðar svo sannarlega í þágu almennings og setur börn og ungmenni í fyrsta sætið. Ríkisstjórnin hefur sett húsnæðismálin í forgang með bráðaaðgerðum til að auka framboð strax sem og langtímaáætlun til að tryggja að ungt fólk í dag geti eignast húsnæði í framtíðinni. Ríkisstjórnin hefur þegar ráðist í aðgerðir til að stytta biðlista barna eftir geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Ríkisstjórnin hyggst hefja sókn í menntamálum og bæta umhverfi nemenda og kennara sem og að efla iðn- og verknám úti um allt land. Ríkisstjórnin hyggst móta fyrstu ungmennastefnu Íslands og beita sér fyrir jöfnu aðgengi barna að íþróttum, listum og frístundastarfi um land allt. Ég hlakka til vinnunnar fram undan en nú er kominn tími til að láta verkin tala.