156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

Störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Enginn sómi er að þingmálaskrá hæstv. ríkisstjórnar hvað menntun og líðan barna varðar. Er bráðavandinn virkilega ekki ljós? Við erum sem samfélag að bregðast börnum og ungmennum. Í málaflokknum ríkir neyðarástand. Íslenska æskulýðsrannsóknin staðfestir það. Með leyfi forseta: 75% stúlkna í tíunda bekk finna fyrir kvíða vikulega eða daglega, 75%, þar af 34% daglega. 40% stúlkna í tíunda bekk finna fyrir depurð vikulega eða daglega, þar af 17% daglega. Ungmenni eru meira einmana heldur en elsti aldurshópurinn á Íslandi. Er þetta ávarpað í þingmálaskrá? Svarið er nei. Hornsteinn íslenskunnar, lýðræðis og nýsköpunar er lesskilningur. Hvar standa íslensk 15 ára börn hvað þetta varðar samkvæmt OECD? Tæp 50% drengja eru ekki með grunnfærni í lesskilningi. Um helmingur drengja er ekki með grunnfærni í lesskilningi á gnægtarlandinu Íslandi. Rúm 30% stúlkna eru á sama stað. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá voru tæp 30% 15 ára barna ekki með grunnfærni í skapandi hugsun, en skapandi hugsun er það sem getur skapað mikla fjármuni fyrir okkur.

Þessi vinnubrögð hæstv. ríkisstjórnar auka stéttaskiptingu og aðra misskiptingu í samfélaginu. Ólíkt þeim erum við í Sjálfstæðisflokknum tilbúin með aðgerðir í þessum málaflokki. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum lyfta öllum börnum og hámarka möguleika allra til jafnra tækifæra. Börn eiga ekki að gjalda stöðu sinnar eða stéttar.