Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Okkur Íslendinga getur greint á um mál, stefnur, lífsskoðun eða gildi. Okkur þingmenn greinir á. Þess vegna erum við hér í ólíkum flokkum, mynduðum um ákveðna hugmyndafræði og hagsmuni. Þjóðfélagshópa greinir á. Verkafólk er oft ósammála samtökum vinnuveitenda um kaup, kjör og vinnuaðstæður. Um eitt greinir okkur ekki á: Enginn getur átt annan. Ekkert ríki í heiminum heimilar eignarhald á fólki. Þrælahald er hvergi leyft. Þess vegna er það ógnvekjandi og ömurlegt að upp skuli koma hvert málið á fætur öðru á íslenskum vinnumarkaði þar sem sannað er að erlent fólk vinnur hér ófrjálst, eitthvað sem við myndum aldrei láta bjóða okkur, og hefur lítið að segja um kaup og kjör.
Við höfum aldrei fengið neitt án baráttu. Vel skipulagður vinnumarkaður er forsenda þess að sátt ríki og að þeim verðmætum sem samfélagið skapar sé skipt á réttlátan hátt. Hvernig snýr þessi þáttur vinnunnar að Alþingi Íslendinga? Brot á fólki á vinnumarkaði, ofbeldi gagnvart valdalitlu fólki á ekki að líðast og á ekki að vera refsilaust. Hér þurfum við þingmenn að taka til hendinni. Þennan smánarblett þarf að uppræta. Mansal á ekki að líðast og ætti aldrei að vera refsilaust. Þótt þjóðþingið hafi ýmis ráð og úrræði til að bæta aðstæður vinnandi fólks kemur það aldrei í stað öflugrar baráttu verkalýðshreyfingarinnar.
Það má gera gagn á Alþingi. Þegar maður hugsar um þessa baráttu þeirra sem eiga og þeirra sem vinna þá veltir maður fyrir sér hvort launafólk eigi nógu marga fulltrúa á Alþingi. Pétur Gunnarsson rithöfundur skrifaði eitt sinn, með leyfi forseta:
„Af því Alþingishúsið rúmaði ekki þjóðina alla, þurfti hún að kjósa fulltrúa sína á þing. Dáldið spánskt hvernig hún kom upp úr kjörkössunum: allir gufaðir upp nema lögfræðingar, bankastjórar og fáeinir sameignarmenn.“
Það er ánægjulegt við síðustu alþingiskosningar að fulltrúum vinnandi launafólks fjölgaði á þingi. Við þurfum að nýta þann slagkraft til að styrkja stoðir velferðarkerfisins og sjá til þess að venjulegt fólk komist í öruggt og varanlegt húsnæði og við þurfum einnig að styrkja stöðu iðnnáms og svara kalli þeirra sem vilja mennta sig.