Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er flugvöllurinn í Reykjavík. Loksins, loksins er kominn röggsamur samgönguráðherra sem heggur á þann hnút sem framtíð og öryggi Reykjavíkurflugvallar hefur verið, í upplausn til fjölda ára. Umræðan um framtíð Reykjavíkurflugvallar í gegnum árin hefur verið óþolandi fyrir íbúa landsbyggðanna. Á hann að fara eða vera? Og hvert á hann að fara? Flugvöllurinn er hluti af almenningssamgöngum í landinu og lífsspursmál fyrir sjúkraflug af öllu landinu til Landspítalans þar sem nýbyggingin er að rísa vegna nálægðar við innanlandsflugið. Undanfarin ár hefur stöðugt verið þrengt starfseminni og þétting byggðar í nágrenni flugvallarins er ekki heldur mjög góð. Það hefur verið ákveðið bæði af hálfu stjórnvalda og Reykjavíkurborgar.
Á síðasta ári leist bæði þáverandi innviðaráðherra og borgarstjóra vel á að flugvöllurinn færi í Hvassahraun þó að Reykjanes logaði allt. Það var auðvitað galið að tala þannig. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur dregið lappirnar frá því í fyrravor að fella niður tré sem stofna flugöryggi í hættu. Samgöngustofa hefur skipað en nú er austur/vesturflugbrautin lokuð og líf fólks sem þarf að nýta sjúkraflugið er auðvitað í stórhættu. Heilbrigðisráðherra segir það óboðlegt að öryggi sjúklinga sé í hættu vegna lokunar brautarinnar.
Loksins, með þrýstingi frá nýjum samgönguráðherra, ríkisstjórninni og Samgöngustofu, hefur verið fyrirskipað og er byrjað að fella trén. Það hefur komið fram að hátt í 3.000 sjúkraflug hafa verið farin á síðustu fjórum árum og það sýnir þörfina, hve hún er mikil. Ég er ánægð með að forsætisráðherra hefur lýst því afdráttarlaust yfir að ríkisstjórnin standi með Reykjavíkurflugvelli og að hann sé ekki á förum. Það er ekki búið að finna annan stað fyrir hann.
Það verður líka að ráðast í byggingu á nýrri samgöngumiðstöð á flugvellinum, sem er ekki til sóma, og endurskoða þessi bílastæðagjöld sem eru enn einn (Forseti hringir.) landsbyggðaskatturinn. En ég segi: Standið við samning ríkis og sveitarfélaga um að standa vörð um öryggi á Reykjavíkurflugvelli, öllum okkar landsmönnum til hagsbóta.