156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

Störf þingsins.

[15:36]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þá eru loksins þingstörfin hafin, nú þegar meira en 50 dagar eru frá því að ríkisstjórn var mynduð. Margt bendir til þess að komandi kjörtímabil verði áhugavert fyrir margra hluta sakir. Fyrstu skref hinnar nýju stjórnar er með þeim hætti að þingstörfin gæti orðið fjörugri en oft áður.

Frú forseti. Eftir að ljóst var að Samfylking og Viðreisn gátu ekki soðið saman stjórn nema með þeim eina kosti sem eftir var, þ.e. að fá Flokk fólksins til samstarfs, tóku við óvenjustuttar þreifingar þeirra þriggja sem leiða nú ríkisstjórnina. Einkennilegt er að verða vitni að þeirri umpólun sem hefur orðið á stefnumálum Flokks fólksins. Þar stendur ekki steinn yfir steini lengur. Það er búið að skipta um vél í þingmönnum flokksins, eins og menn segja á verkstæðunum. Önnur eins umpólun hefur ekki sést varðandi breytingu á afstöðu stjórnmálaafls, hvorki í málefnalegu tilliti eða á þeim hraða sem þetta hefur gerst á. Leitun er að kosningamáli þess flokks sem hann hyggst standa við og kjósendur flokksins hljóta að spyrja sig: Hvað varð um öll þessi mál? Byrjum á 450.000 kr., skatta- og skerðingarlaust. Það loforð flokksins er komið í ruslafötuna. Desemberuppbótin margumrædda er óralangt frá því að uppfylla þetta loforð flokksins um 450.000 kr. lágmarkslaun, hún er eins og sandkorn á sjávarströndu í þeim samanburði. Salan á Íslandsbanka, flokkurinn var alfarið á móti því að selja þessa mjólkurkú ríkisins. Nú stendur fyrir dyrum sala bankans og andstaða flokksins er komin í sömu ruslafötu. Andstaða við borgarlínuna stóð ekki lengi. Hæstv. ráðherra flokksins stökk út í Fossvog og fletti þar við moldarköggli sem fyrstu skóflustungu að brú sem þjóna á borgarlínudraumi Samfylkingarinnar. Brúin sú, þótt dýr sé, á ekki að þjóna fjölskyldubílnum. Hann mun áfram vera fastur í umferðarhnútum borgarinnar.