Alvarleg staða orkumála á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég þakka bæði hv. þingmanni og málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir að taka þessa umræðu. Ég segi bara að það er fullkomlega eðlilegt að hv. þm. Jón Gunnarsson fari hér yfir söguna vegna þess að við verðum að læra af henni. Þegar ég kom í stól núverandi hæstv. ráðherra þá voru skilaboðin frá næststærsta orkufyrirtækinu, sem vann undir forystu núverandi stjórnarflokka, að það væri ekki réttlætanlegt að virkja meira. Það er ein af ástæðunum fyrir því að við erum komin í þessa stöðu sem er núna. Mér finnst skynsamlegt af hæstv. ráðherra að virða það og segja frá því hvað var gert á síðasta kjörtímabili. Ég vona að hæstv. ráðherra noti þá vinnu. Ég afhenti honum það, guð einn veit að ég hefði viljað fá möppu með frumvörpum tilbúnum, ég hefði viljað að það væri búið að vinna í nokkur ár að einföldun vegna þess að það er flókið að einfalda en það er einfalt að flækja. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson segir að það skipti máli hvað stjórnarandstaðan gerir. Það er alveg skýrt. Við munum hjálpa ykkur í þessu (Gripið fram í.) en okkur liggur á. En það hræðir mig þegar ég heyri þessar tölur hjá hv. þingmanni Viðreisnar sem byrjar á að segja: Bíddu, þarf að tvöfalda, kemur stóriðja? Það er enginn að tala um stóriðju þegar talað er um tvöföldun. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér þetta. Okkur vantar græna orku og það liggur á. Ég hvet hæstv. ráðherra til þess að kynna þessa skýrslu hér um stöðu raforkumála vegna þess að við verðum að ræða þetta með upplýstum hætti. Ég get auðvitað ekki farið í allt það sem hér hefur komið fram en það er hins vegar gríðarlega mikilvægt að það er búið að sameina stofnanir og það eru tilbúnir tveir rammar þó svo að við þurfum að breyta því, það er annað frumvarp tilbúið til að einfalda það. En hvað sem við gerum í því: Ekki hika. Ég hvet hæstv. ráðherra: Komdu með rammana því það er tækið sem við höfum núna til þess að geta farið að nýta orku því að við þurfum á því að halda, (Forseti hringir.) m.a. út af þjóðaröryggi eins og hv. þm. Jón Gunnarsson benti réttilega á.