Alvarleg staða orkumála á Íslandi.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni. Það fer vel á því að fyrsta sérstaka umræðan á yfirstandandi þingi skuli fjalla um alvarlega stöðu orkumála. Ísland hefur verið í fararbroddi þegar kemur að endurnýjanlegri orku en síðustu ár hafa því miður einkennst af stöðnun og verkstoli í þessum málaflokki. Nú verða breytingar á. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur þegar gefið skýr skilaboð um hvert skuli stefna. Tryggja þarf framfarir í orkumálum. Þetta verður gert með því að ráðast í aðgerðir til að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi raforku í landinu og bæta orkunýtni í kerfinu. Með þessu verður stutt bæði við orkuskipti og verðmætasköpun um allt land.
Það kemur meira til, hæstv. forseti. Við ætlum að einfalda ferli leyfisveitinga, lögbinda tímafresti og setja verkefni í nýtingarflokki í rammaáætlun í forgang í stjórnsýslu orkumála. Að auki verður forgangsmál hjá nýrri ríkisstjórn og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingarinnar að tryggja forgang heimila og minni fyrirtækja í landinu að orku með sérstakri lagasetningu þar um. Fyrri ríkisstjórn leyfði kyrrstöðu að taka yfir í orkumálum og sinnti ekki uppbyggingu kerfanna með fullnægjandi hætti. Þessu þarf að breyta.
Ég get ekki staðið hér og tekið þátt í sérstakri umræðu án þess að nefna bága stöðu orkumála á Vestfjörðum. Vestfirðingar hafa samþykkt ítrekaðar ályktanir um að vera færðir úr biðflokki í verkefnaflokk. Alþingi samþykkti samhljóða ályktun árið 2018 um að Vestfirðir yrðu settir í forgang í raforkumálum. Staða orkumála í fjórðungnum hamlar eðlilegri framþróun atvinnulífs og raforkuframleiðsla innan Vestfjarða annar einungis litlum hluta af orkuþörf landshlutans og Vesturlína, flutningslína raforku frá öðrum landshlutum til Vestfjarða, (Gripið fram í.) liggur um veðurfarslega erfiðustu lagnalínur landsins. Það eru 50 ára gamlar trélínur sem eru þar í flutningskerfinu og þessu þarf að breyta.
Ég hefði viljað halda áfram en ég vil ekki gera forseta reiðan.
(Forseti (BHar): Forseti þakkar þá hugulsemi.)