raforkulög og stjórn vatnamála.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Tilgangur frumvarpsins er að bregðast við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. janúar síðastliðnum í máli nr. E-2457/2024. Með dóminum var, eins og þingheimur þekkir eflaust, ógilt heimild Umhverfisstofnunar frá 9. apríl 2024 til breytinga á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun, sem og ákvörðun Orkustofnunar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur hefur í raun þá þýðingu að framkvæmdir þar sem óska þarf eftir heimild til breytinga á vatnshloti samkvæmt lögum um stjórn vatnamála teljast ekki heimilar samkvæmt þeim lögum.
Samhengisins vegna er rétt að fara nokkrum orðum um aðdraganda setningar laga um stjórn vatnamála og hvernig á þau reyndi í dómi héraðsdóms. Tilgangurinn með setningu laga um stjórn vatnamála var að innleiða vatnatilskipun Evrópusambandsins og með hugtakinu vatnshlot er átt við einingu vatns, svo sem allt það vatn sem er að finna í stöðuvatni, á eða strandsjó. Í 18. gr. þessara laga er fjallað um við hvaða aðstæður hægt er að heimila breytingar á vatnshloti sem hafa í för með sér að ekki sé hægt að ná umhverfismarkmiðum, og skilyrði fyrir slíkri heimild. Með ákvæðinu er innleidd 4. mgr. 7. gr. vatnatilskipunarinnar. Í frumvarpi til laga um stjórn vatnamála, sem varð að lögum nr. 36/2011, kemur fram að breyting á vatnshloti sem hefði í för með sér að ekki væri hægt að ná umhverfismarkmiðum væri heimil þegar um væri að ræða nýjar breytingar sem leiddu til breytinga á vatnsgæðum, vistfræðilegum, vatnsformfræðilegum eða eðlisrænum eiginleikum yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots. Ég öfunda nú ekki þá ágætu sérfræðinga sem fengu það verkefni að þýða þetta allt saman.
Í skýringum við 18. gr. í athugasemdum við fyrrnefnt frumvarp var sérstaklega tiltekið að í a-lið væri um að ræða nýjar framkvæmdir sem hefðu áhrif á gerð vatnshlots og nefnd voru dæmi um slíkar framkvæmdir, svo sem vatnsaflsvirkjanir, flóðavarnir, vegagerð eða gerð siglingavega og gerð aðrennslisskurða fyrir vatnsaflsvirkjanir og miðlunarlón. Að tillögu umhverfisnefndar voru svo gerðar breytingar á 18. gr. þess efnis að í stað þess að vísa til nýrra breytinga var vísað til breytinga, svo sem vegna mengunar eða í tengslum við loftslagsbreytingar.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2457/2024 byggist á skýringum þingnefndarinnar við breytingartillöguna og er dregin sú ályktun í dóminum að hún hafi verið lögð fram gagngert í þeim tilgangi að taka af tvímæli um að heimildin í umræddu lagaákvæði skyldi ekki taka til breytinga á vatnshloti vegna beinna áhrifa frá framkvæmdum heldur bara til aðstæðna þar sem eiginleikar þess hefðu raskast af öðrum ástæðum og af þeim sökum yrði að telja að Alþingi hefði hafnað því að breytingar vegna framkvæmda sem taldar voru upp í dæmaskyni í skýringu með greininni í frumvarpi til laganna féllu undir heimildina. Þetta var sem sagt sú túlkun sem kemur fram í dómi héraðsdóms sem hleypti þessari löggjafarvinnu af stað.
Í frumvarpinu sem ég mæli hér fyrir eru lagðar til breytingar til nánari skýringar á þessari 18. gr. laga um stjórn vatnamála til að það sé hafið yfir allan vafa að ákvæðið taki vissulega til breytinga á vatnshloti vegna framkvæmda, svo sem vatnsaflsvirkjana, og með því er einfaldlega áréttaður sá tilgangur sem 18. gr. laga um stjórn vatnamála var augljóslega ætlaður í áðurgreindu frumvarpi. Þessi tillaga er í samræmi við ákvæði 7. mgr. 4. gr. vatnatilskipunar og hvernig hún hefur verið túlkuð í framkvæmd, m.a. hjá Evrópudómstólnum. Auk þess er hér lagt til að Umhverfis- og orkustofnun geti í sérstökum undantekningartilvikum fallist á flýtimeðferð vegna umsóknar um virkjanaleyfi, þ.e. ef brýn þörf er á að hefja eða halda áfram starfsemi. Þá er samráðstíminn styttur og veittur fjögurra vikna frestur til að afgreiða mál. Gert er ráð fyrir að flýtimeðferð komi helst til greina í málum þar sem öll helstu gögn liggja fyrir, þar með talið sjónarmið hagsmunaaðila og annarra.
Virðulegi forseti. Það eru auðvitað skiptar skoðanir á þessum tiltekna dómi en óháð þeim þá er það einfaldlega þannig að þessi dómur hefur í raun í för með sér að það skapast réttaróvissa um allar framkvæmdir þar sem óskað var eftir heimild til breytinga á vatnshloti og það er ekki staða sem við teljum okkur geta unað við. Þess vegna er ný ríkisstjórn einhuga um að ráðast í þessar lagabreytingar. Það verður að eyða þessari óvissu og ég tel að það væri ekki forsvaranlegt að fara að bíða í einhverja mánuði eftir að Hæstiréttur mögulega eyði þessari óvissu. Ég held og ég vona að við öll hér inni getum verið sammála um að sú lagalega staða sé óásættanleg. Hún hefur auðvitað í för með sér að framkvæmd Landsvirkjunar og fleiri mögulegar framkvæmdir, þetta heyrir maður bara héðan og þaðan af landinu og frá hinum ýmsu framkvæmdaaðilum, eru komnar í uppnám. Og ef framkvæmdir við Hvammsvirkjun frestast þá blasa við umtalsverðar tafir á gangsetningu virkjunarinnar og nægar hafa tafirnar verið nú þegar. Tafirnar eru þá ekki aðeins vegna þess tíma sem tekur að afla leyfa að nýju heldur einnig vegna keðjuverkandi þátta í tengslum við útboð og verkþætti sem hefur líka í för með sér heilmikinn kostnað fyrir hagaðila.
Nú liggur alveg fyrir, og við ræddum það hérna áðan í ágætri umræðu um stöðu orkumála í landinu, að á næstu árum verður orkuvinnslukerfi landsins rekið nálægt eða yfir getumörkum. Í því samhengi má nefna að Landsnet spáir núna neikvæðum orkujöfnuði á næstu árum. Þetta þýðir að það er brýnt að auka framboð af orku og sökum dráttar á styrkingu flutningskerfis raforku, eins og við ræddum hér áðan, er landinu í raun skipt upp í tvö vinnslusvæði þar sem aflstöðvar á Norðausturlandi geta ekki nema með takmörkuðum hætti stutt við orkuþörf á Suðvesturlandi vegna flutningstakmarkana. Samkvæmt kerfisáætlun Landsnets er fyrirséð að þessar takmarkanir verði við lýði næstu jafnvel sex, sjö árin sem hefur skapað brýna þörf til að styrkja framboð raforku á Suðvesturlandi. Og því miður er í raun ekkert margt annað á döfinni núna heldur en áform Landsvirkjunar um Búrfellslund árið 2026 eða 2027, sem bætir þá 440 GWst vinnslugetu við kerfið, og svo Hvammsvirkjun 2029 með 740 GWst af vinnslugetu. Þetta eru þá samtals 1.180 GWst sem er minna en spá Landsnets um aukningu eftirspurnar til þess tíma. Megnið af aukningu eftirspurnar mun koma til á Suðvesturlandi og því er mikilvægt að tryggja aukið framboð þar. Þetta snýst um orkuöryggi, þetta snýst um orkuskipti og þetta snýst líka um verðmætasköpun og byggðaþróun um allt land.
Verði þetta tiltekna frumvarp sem ég mæli hér fyrir að lögum munu skapast forsendur til að afgreiða umsókn um virkjanaleyfi vegna Hvammsvirkjunar ásamt heimild til breytinga á vatnshloti Þjórsár. Þetta verður þá afgreitt saman vegna einföldunarákvæðis sem við settum inn í þetta frumvarp og ég ætla að víkja betur að á eftir. Í þessu sambandi kemur þá til skoðunar að beita flýtimeðferð í málinu og þannig verði leyst úr þeirri óvissu sem hefur skapast í kjölfar fyrrgreinds héraðsdóms hvað varðar þær framkvæmdir sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot, m.a. vegna Hvammsvirkjunar.
Þá er í frumvarpinu lagt til að sé um að ræða virkjunarframkvæmd í orkunýtingarflokki rammaáætlunar teljist skilyrði b-liðar 2. mgr. 18. gr. laganna uppfyllt, þ.e. að tilgangur framkvæmdanna eða umsvifanna vegi þyngra vegna almannaheilla og/eða ávinnings fyrir heilsu og öryggi manna eða fyrir sjálfbæra þróun en ávinningurinn af því að umhverfismarkmið náist. Þetta er sem sagt skilyrði í þessu tiltekna undantekningarákvæði sem við erum að skerpa þarna á. Það er þá gert með þeim rökum að telja verði að mat á þeim þáttum sem fjallað er um í þessum b-lið hafi nú þegar átt sér stað í vinnu við gerð tillögu að rammaáætlun, verndar- og orkunýtingaráætlun, skv. lögum nr. 40/2011, tillögu sem hefur þá verið samþykkt á Alþingi, og það sé þá óþarft að Umhverfis- og Orkustofnun leggi nýtt mat á almannahagsmuni í samhengi við þessar tilteknu breytingar á vatnshloti. Stofnunin myndi áfram leggja mat á skilyrði a- og c-liðar í tilviki virkjunarframkvæmda í nýtingarflokki, þ.e. að gripið sé til allra ráðstafana sem raunhæfar teljast til að draga úr skaðlegum áhrifum á ástand vatnshlots og að tilganginum verði ekki með góðu móti náð með umhverfisvænni leiðum vegna tæknilegra erfiðleika eða óhóflegs kostnaðar.
Eins og ég rétt tæpti á þá er líka lagt til í þessu frumvarpi að ákvörðun um breytingu á vatnshloti sé sameinuð viðkomandi leyfisákvörðun þegar framkvæmd er háð leyfi Umhverfis- og orkustofnunar, auk þess sem kæruheimildin verður sameinuð. Þessi breyting er til þess fallin að einfalda, samræma og stytta afgreiðslutíma leyfisumsóknar á vegum Umhverfis- og orkustofnunar og auka skilvirkni.
Virðulegi forseti. Ég held ég hafi hér rakið meginefni frumvarpsins og ég legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.