156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

raforkulög og stjórn vatnamála.

89. mál
[16:37]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er, þó að ég reyni alltaf að vera ekki með slíkar hvatir, að það örlar á örlítilli öfund þegar ég hlusta hér á viðbrögð og umræður um orkumál. Ég skal viðurkenna að ég upplifði þetta aldrei á mínum ferli, kannski aðeins undir lokin þegar menn voru búnir að átta sig á stöðunni. En það er gríðarlega mikilvægt ef niðurstaðan er sú vegna þess að þegar við förum yfir þau mistök sem hafa verið gerð er ég ekki í nokkrum vafa um að löggjafinn hefur brugðist. Það að rammaáætlun hafi fyrst verið samþykkt í minni tíð í byrjun síðasta kjörtímabils, eftir níu ár, er vegna þess að löggjafinn brást og ýmislegt annað.

Varðandi þetta mál, sem hæstv. ráðherra hefur rakið ágætlega, þá er það auðvitað með ólíkindum að þessi dómur skyldi hafa fallið. Nú er það þannig, og ég þekki málið nokkuð, að við gerðum allt hvað við gátum til að flýta þeim framkvæmdum sem um ræðir, bæði Hvammsvirkjun og Búrfellslundi, og það voru mörg flækjustigin. Þegar ég segi hér að það sé einfalt að flækja en flókið að einfalda er það vegna reynslu minnar. En það hafði enginn áhyggjur af þessu enda er, og hæstv. ráðherra kom ágætlega inn á það, ekki nokkur leið að lesa það út úr vilja löggjafans að þetta hafi verið það sem löggjafinn vildi gera. Það er ekki nokkur leið, þegar menn lesa nefndarálitin og alla þessa vinnu, og þegar menn líta bara á hv. þingmenn sem gengu frá þessu, sem voru úr öllum flokkum, að komast að þeirri niðurstöðu að það hafi verið vilji hv. Alþingis að stöðva þessar framkvæmdir. Það er mjög mikilvægt að koma með skýr skilaboð og ég fagna því frá hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra að við ætlum að gera allt hvað við getum. Við munum styðja það, við sjálfstæðismenn, og ég geri ráð fyrir því að í meðförum þingsins munum við fá viðbrögð sérfræðinga. Ég vona að við getum gengið frá þessu hratt og vel þannig að hægt sé að eyða allri óvissu. En síðan þarf að halda áfram.

Það er áhugavert að hlusta á þessa umræðu og ég hvet til þess að umræðan verði meiri og dýpri, og þess vegna hvet ég hæstv. ráðherra til að flytja sem fyrst skýrslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um raforkumálefni sem var dreift hér á síðasta hausti. Þar eru allir þættir máls dregnir fram. Það er búið að gera gríðarlega margt á síðasta kjörtímabili og það skilaði svo sannarlega árangri. En það verður vonandi til þess að dýpka umræðuna hér á hinu hv. Alþingi. Það er svolítið kaldhæðnislegt, og ég er ekki að gera hv. þingmönnum stjórnarliðsins upp neina slæma hluti en það er samt þannig, þegar maður hlustar á hvað þeir sögðu, að þessi rosalega samhenta ríkisstjórn er farin að tala svolítið í kross. Í það minnsta þarf hæstv. ráðherra að útskýra hvort hann ætli að ná því fram sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson sagði þegar hann sagði að síðasta ríkisstjórn hefði ekki gert neitt í orkumálum heldur bara komið af stað milliliðum. Nú er það auðvitað fráleitt. En það sem ég held að hv. þingmaður Flokks fólksins sé að vísa til er það að það er kominn hér raforkumarkaður sem var ákveðið 2003. Og af því að hæstv. ráðherra vísar reglulega til þess að við erum með evrópskt regluverk í þessu þá þarf það að koma skýrt fram hvort þetta áherslumál Flokks fólksins, að koma okkur út úr evrópska regluverkinu, sé stefna ríkisstjórnarinnar, því að það var það sem hv. þingmaður Flokks fólksins sagði í umræðunni hér áðan. Svo er allt í lagi þegar hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar — ég tala nú ekki um að þegar hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir talar þá mætti hún kannski minnast á að farið var í fyrsta jarðhitaleitarátakið á þessari öld á síðasta kjörtímabili. Ef ég man rétt, og ég man rétt, þá sagði hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar: Við fundum gull. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta var fyrsta jarðhitaleitarátakið á þessari öld. Við fundum það víðar og það var út af því hvað síðasta ríkisstjórn gerði í þeim málum og svo sannarlega á Vestfjörðum.

Og af því að hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson talaði um að við ættum að læra af Færeyjum þá væri ágætt að vita hvort það sé stefna ríkisstjórnarinnar. Ástæðan fyrir því að Færeyjar nota batterí er sú að þeir eru farnir að stíga mjög stór skref í vindorkunni. Sjávarföllin eru því miður ekki komin á þann stað að það sé arðbært en það er mjög spennandi. Við tókum það sérstaklega út og hv. fyrrverandi þingmaður, Ásmundur Friðriksson, leiddi hóp sem skoðaði sérstaklega aðra orkukosti. Það er mjög mikilvægt að menn haldi áfram því að Landsnet er búið að samþykkja að fara í stærsta framkvæmdaátak í sinni sögu. Suðurnesjalína 2 var loksins leyst og hún mun klárast á þessu ári nema eitthvað annað komi til. Það er mjög mikilvægt að í þessum málaflokki haldi menn áfram og ég bara fagna því þegar menn ætla að stíga stærri skref en stigin voru í fyrsta frumvarpinu. Skárra væri það nú, fyrsta frumvarpið er komið fram en það er algerlega skýrt tekið fram að það er upphafið að meiri einföldun og svo sannarlega voru stigin skref í einföldun eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra í umræðunni hér áðan þegar hann vísaði til þess að mikið af virkjunum hefðu verið stækkaðar. Það kom til vegna þess að það var gríðarleg einföldun með aflaukningarfrumvarpinu sem gerir það að verkum að stækkun virkjana er ekki lengur inni í rammanum og einn áfangi var bara þurrkaður út vegna þess að við fluttum það frumvarp sem var samþykkt og gert að lögum. Það er væntanlega stærsta einföldun sem hefur verið gerð í orkumálum á Íslandi.

Það þarf að ná því markmiði að vera með — ég veit ekki hvað er góð íslensk þýðing og ég biðst velvirðingar, virðulegi forseti, á því að nota enskuslettu en „one stop shop“ er eitthvað sem við hljótum að koma á, þ.e. að þegar menn eru að fara í virkjunarframkvæmdir fari þeir bara á einn stað og leysi þar úr sínum málum. Það var það sem við vorum byrjuð að vinna að og mikilvægt að núverandi ríkisstjórn haldi því áfram. Það kemur að tímasetningum, færri kæruleiðum, öllum þessum þáttum og ég er mjög ánægður að heyra að hæstv. ráðherra ætlar ekki bara að koma með ramma á hverju þingi; ef ég skil hæstv. ráðherra rétt ætlar hann að koma með tvo ramma sem eru tilbúnir nú á vorþinginu. En af því að hæstv. ráðherra vék að því að það hefði verið slæmt ef frumvarp okkar Sjálfstæðismanna hefði verið samþykkt á sínum tíma þá má nefna að frumvarpið kom til vegna þess að framganga ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna var með þeim hætti að eftir alla faglegu vinnuna, búið að flokka niður kostina, fór ríkisstjórnin og pikkaði út bestu vatnsaflskostina, hagkvæmustu vatnsaflskostina, m.a. Hvammsvirkjun og annað slíkt, og setti það í biðflokk og jafnvel í verndarflokk. Það kom frumvarp sem var þess eðlis að öll þessi faglega vinna sem tekur allt of langan tíma og er allt of flókin — en þegar hún er búin verður hæstv. ráðherra að leggja það fram. Það er síðan þingsins að ákveða hvað það gerir. Þegar hæstv. ráðherra segir að ekkert sé unnið með því að fá ramma þar sem allt er í biðflokki — jú, ef þingið ákveður að setja eitthvað úr biðflokki í nýtingarflokk þá gerir þingið það. Hér er þjóðkjörið þing. Það eru engir embættismenn sem eru bara að vinna með ákveðnar formúlur, sem eru svo sannarlega mannanna verk og undarlegar, það er ekki þeirra að taka ákvörðun fyrir hönd þjóðarinnar, hvað við ætlum að nýta og hvað ekki.

En aðalatriðið er þetta, það sem við eigum núna, og það sem mun hjálpa okkur við að setja hlutina í þann farveg að það megi fara af stað, er rammaáætlun; það eru tilbúnir tveir rammar og það hefur aldrei verið unnið jafn hratt í orkumálum og á síðasta kjörtímabili. Það er tilbúið. Klárum það. Eigum við að einfalda rammann? Já. Kannski leggja hann niður? Já, hugsanlega. Norðmenn eru búnir að leggja hann niður. Af hverju? Af því að samhliða því voru þeir að vinna í verndarmálunum og þeir töldu sig bara vera komna það langt að ramminn væri ekki nauðsynlegur lengur. Því miður höfum við ekki unnið með þessum hætti. Því verður ekki breytt og við þurfum að vinna með þá stöðu sem uppi er núna.

Hæstv. ráðherra er í því öfundsverða hlutverki að hafa stjórnarandstöðu sem er að hvetja hæstv. ráðherra til dáða. Trúðu mér, virðulegi forseti, það er gríðarleg breyting. Ætli það heiti ekki bara bylting? En það eru alltaf þessar umræður sem eru svo hættulegar. Það er af mörgu að taka; garðyrkjubændur án nokkurs vafa og mjög margt annað. Hv. þingmenn eða aðrir segja: Já, við gerum ekki neitt fyrr en við vitum hvert orkan á að fara. En við erum löngu farin úr þessu, ef við vorum einhvers staðar þarna. Íslensk orkusaga er svona. Þetta byrjaði þannig að það var mikið af einkaaðilum. Það voru 500 smávatnsaflsvirkjanir hér árið 1950, hetjur sem bjuggu til virkjanir fyrir sig og nágrannana. Og síðan fór ríkið inn með þeim hætti að það fékk stórfyrirtæki, erlend auðfyrirtæki, til að byggja stóriðju. Það byggði stóra virkjun og gat síðan byggt upp dreifikerfi og annað slíkt til að almenningur gæti notið góðs af. Það er stutta útgáfan af íslensku orkusögunni, svo er að vísu jarðhitasagan alveg sérmál. Fyrir löngu síðan, fyrir 20 árum, ákváðum við að fara í raforkumarkað og orkumarkað og það þýðir að t.d. orkumálaráðherra hefur ekkert að gera með það hvaða ákvarðanir Landsvirkjun tekur. Það er sjálfstætt fyrirtæki þó að það sé ríkisfyrirtæki. Það er líka fullt af öðrum aðilum, þó nokkuð af litlum aðilum. Við erum að sjá breytingar í orkuumhverfinu sem verða þannig að fólk — og það geta bara verið heimili sem geta bæði framleitt orku og keypt orku. Vonandi klára menn verk sem við höfðum hafið og var á þingmálaskrá, að hægt verði að selja inn á kerfið þannig að ef hv. þm. Guðbrandur Einarsson ætlar að fá sólarsellur eða birtuorku á þakið hjá sér, notar meira en hann þarf getur hann selt inn á kerfið. Það er eitthvað sem aðrar þjóðir eru komnar miklu lengra á veg með en við. Þetta er ekki einhver miðstýring, að einhverjir sitji í ráðuneyti bak við skrifborð og ákveði: Þessi orka hérna fer hingað. Við erum löngu farin þaðan.

Síðan þurfum við að halda áfram með jarðhitann því að við tölum lítið um það. En þegar ég kom að því embætti sem ég var í þá fundum við það út, eftir að hafa látið ÍSOR gera skýrslu, að tvær af þremur hitaveitum á Íslandi væru í miklum vanda.

Aðalatriði málsins er þetta: Okkur liggur á. Það má engan tíma missa. Ég gat ekki annað heyrt hjá hæstv. ráðherra en að það eigi að byggja á því og nýta það sem búið er að gera. Það er mjög skynsamlegt því að mjög margt hefur verið gert. Það er ótrúlega einfalt að flækja en það er flókið að einfalda. Við getum tekið og eigum að taka allt það góða sem kemur úr regluverkinu í Evrópu. En staðreyndin er sú að staðan í Evrópu er mjög slæm þegar kemur að regluverki. Það er alls ekki þannig, hvort sem það eru þessar framkvæmdir eða einhverja aðrar, að það gangi mjög hratt. Draghi-skýrslan dregur það mjög skýrt fram að samkeppnishæfni Evrópu er mjög löskuð vegna þess að regluverkið er svo þungt og svifaseint þannig að við getum ekki bara reitt okkur á það. Við þurfum að horfa út fyrir rammann. Það er reyndar alveg ótrúlegt og óskiljanlegt að hæstv. ríkisstjórn sé að daðra við það að ganga inn í Evrópusambandið. En það er umræða sem verður gaman að taka og ég efast ekkert um það eina stutta stund að þegar menn taka hana mun almenningur sjá að það er ekki góð hugmynd. Eina skiptið sem mikið fylgi er við að ganga í Evrópusambandið er þegar engin umræða er um það. Það er bara almenna reglan. Í fyrstu skoðanakönnuninni sem ég sá, og það er mjög langt síðan, um hvort við ættum að ganga í Evrópusambandið eða ekki, voru það 80% þjóðarinnar sem vildu ganga inn. Svo var næsta spurning: Veistu hvað Evrópusambandið er? Og þá voru það 90% sem vissu ekki hvað það var. Það er ekkert öðruvísi en gengur og gerist meðal þjóða, við erum ekkert óskynsamari eða verr upplýst en aðrir. En það er mjög óskynsamlegt, þó að það tengist þessum málum bara með óbeinum hætti, að vera að daðra við slíkt.

En aðalatriðið er þetta: Eigum við að nýta það sem kemur úr evrópska regluverkinu, það sem snýr að einföldun? Án nokkurs vafa, taka allt það góða þaðan. En við þurfum líka að hugsa út fyrir boxið og gera allt hvað við getum vegna þess að okkur liggur á. Við gerðum lítið í raforkumálum í 15 ár, mjög lítið í jarðhitanum í 20 ár. Þess vegna er þessi staða komin upp. Orkukmálin eru margt; þau snúa að lífsgæðum, þau snúa að efnahagsmálum, þau snúa að þjóðaröryggi en þau snúa líka að því að við verðum alltaf að hugsa til langs tíma. Ég heiti stuðningi okkar, í það minnsta þingflokks Sjálfstæðismanna, við að halda áfram á þeirri leið sem við hófum. Við rufum kyrrstöðuna. En betur má ef duga skal og ég vona að við sjáum hér hv. Alþingi sameinað í því að bæta úr því.