156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025--2029.

87. mál
[17:46]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka 5. þm. Norðaust. aftur fyrir góðar athugasemdir. Þetta er hárrétt sem þingmaðurinn nefnir, hér þarf að skoða málið heildstætt með einnar heilsu nálgun og huga sérstaklega að sýklalyfjanotkun í dýrum, ekki síður en í mönnum. Eins og kemur fram í aðgerðunum þá snúast þær heilmikið um þetta og verða þar af leiðandi á forræði atvinnuvegaráðherra og auðvitað er ríkisstjórnin einhuga að baki þessari þingsályktunartillögu.

Þingmaðurinn spyr hvort ég sé sammála því að það þurfi að efla innlenda matvælaframleiðslu og ég er sammála því, ekki síst í ljósi matvælaöryggis sem ég tel að við þurfum virkilega að huga að. Varðandi innflutning á kjöti þá tel ég að þar sé mikilvægt að viðhafa gott eftirlit og auðvitað bregðast við eftir því sem tilefni er til.