aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið eða samsvarið, við erum kannski orðnar bara rosalega sammála í þessu máli. Það er líka gott að fólk sjái að við erum nefnilega mjög oft sammála í þessum sal þótt við séum í stjórn og stjórnarandstöðu. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það sem hér kemur fram og heyri að hún er sammála mér um mikilvægi endurhæfingar og mikilvægi Reykjalundar sem endurhæfingarspítala. Vert er að minnast þess til að mynda hvað það hafði mikil áhrif á okkur þegar við lentum í Covid-faraldrinum, sem ég veit að hæstv. heilbrigðisráðherra þekkir býsna vel, hvað til að mynda skiptir miklu máli að eiga góða spítala annars staðar en við Hringbraut. Þar hljóp Reykjalundur m.a. undir bagga með Landspítalanum og nýtti þá þann húsakost sem þar er. Ég fagna því mjög ef búið er að veita Reykjalundi styrk. Ég veit að það var búið að gera úttektir á húsakosti stofnunarinnar og þar eiga allar upplýsingar að liggja þannig að það á að vera hægt að fara frekar hratt í aðgerðir til þess að tryggja það að á Reykjalundi verði áfram fyrirtaksendurhæfing. Ég hvet okkur líka til að hafa augu á þessum þriðja geira sérstaklega. Það er ansi algengt að hér komi beiðnir til fjárlaganefndar frá þessum félögum. Það færi auðvitað betur á því að hæstv. ráðherrar gerðu samninga við þá aðila, þá yrði kannski aðeins betra utanumhald um það, en þingið hefur oft brugðist við til að styrkja þessi góðu þriðju geira samtök sem hafa svo mikið verið að leggja samfélaginu lið.