156. löggjafarþing — 4. fundur,  12. feb. 2025.

aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum 2025--2029.

88. mál
[18:49]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka 10. þm. Reykv. s. kærlega fyrir hlý orð í minn garð og fyrir að vekja athygli á því að það er hægt að koma í veg fyrir 30–50% krabbameina með forvörnum. Eins og þingmaðurinn nefndi þá eru þarna það sem kallaðir eru áhrifaþættir heilsu; hreyfing, næring, svefn, að forðast áfengi og tóbak, þiggja þær bólusetningar sem þarna geta komið að gagni og forðast sól. Það er auðvitað einn liður í aðgerðaáætluninni að fela þar til bærum stofnunum, eins og embætti landlæknis, að koma þessu betur á framfæri og það hefur til að mynda komið æ betur í ljós hversu mikill áhættuþáttur áfengi er. Það er talið að áfengi valdi 12% krabbameina í Evrópu en talan er heldur lægri fyrir Norðurlöndin, 6% samkvæmt einni rannsókn. Þarna er því eftir gríðarlega miklu að slægjast, að við gætum okkar á því að missa ekki þann áhættuhóp frekar úr höndunum. Áfengisneysla er vaxandi hérlendis meðan önnur lönd Evrópu vinna markvisst að því að draga úr henni, þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta upp.