aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum 2025--2029.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur sem og öðrum þeim þingmönnum sem hér hafa tekið til máls. Þetta hefur verið virkilega góð umræða og ég fagna því sérstaklega hversu mikil samstaða er um þessa áætlun, enda um gríðarlega mikilvægt mál að ræða. Ég ætlaði að ræða það að varðandi skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi þá verður hún innleidd í áföngum. Fyrsti áfanginn felst í því að gera svokölluð FIT-próf hjá þeim sem eru 60–69 ára, því að þetta er mjög flókið ferli að koma af stað, og síðan koma aðrir áfangar í framhaldinu. Varðandi áhættuskimun þá er nú þegar, eins og ég hef nefnt hér fyrr, verið að stíga mjög ákveðin skref þegar kemur að BRCA-arfberum og síðan þarf auðvitað að skoða hvaða aðra hópa er um að ræða en fram að því þá falla þeir einstaklingar og þeirra rannsóknir undir almenna greiðsluþátttöku.
En það hefur margt gott komið fram og ég endurtek þakkir mínar til þingmanna fyrir góða umræðu.