156. löggjafarþing — 5. fundur,  13. feb. 2025.

frumvarp um aukna réttarvernd borgara gagnvart sóttvarnalögum.

[10:33]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. heilbrigðisráðherra til hamingju með nýtt hlutverk. En ég var eilítið undrandi eftir að hafa lesið þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar að hvergi var minnst á ný sóttvarnalög, en frumvarp þess efnis var lagt fram á síðasta þingi af þáverandi heilbrigðisráðherra og mikil vinna var lögð í fyrrnefnt frumvarp af þáverandi ráðherra sem og samstarfsflokkum í ríkisstjórn. Þar náði m.a. Sjálfstæðisflokkurinn í gegn mikilvægum breytingum á frumvarpinu á þann veg að kveðið væri á um aukna réttarvernd borgaranna og aðkomu Alþingis að sóttvarnaráðstöfunum til að tempra vald embættismanna svo ekki sé gengið meira á réttindi borgara þessa lands en bráðnauðsynlegt sé. Umrætt frumvarp liggur því tilbúið í heilbrigðisráðuneytinu með þessum breytingum um aukna réttarvernd. Ég velti því fyrir mér, frú forseti, hvers vegna málið er ekki að finna á þingmálaskránni. Ég veit að það er ekki vegna þess að ríkisstjórnin er eitthvað feimin við að taka mál fyrrverandi ríkisstjórnar og gera að sínum enda er þriðjungur þingmálaskrárinnar fenginn frá síðustu ríkisstjórn.

Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Af hverju er frumvarpið eins og það liggur fyrir ekki að finna á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar?