afleiðingar mats á ofgreiðslu til stjórnmálasamtaka.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna og mun þá reyna að vera enn skýrari í svörum mínum en ég var áðan vegna þess að ég tel að ég hafi svarað henni. Það er sem sagt þannig að í lögum er stundum kveðið á um endurgreiðsluskyldu og endurgreiðsluskilyrði og á það við um margs konar löggjöf. Þegar slík ákvæði eru ekki fyrir hendi fer eftir almennum skilyrðum stjórnsýslulaga. Þá er það matskennt hvenær slík krafa skapast og hvenær ekki. Slíkt mat fór fram. Niðurstaða er komin úr því. Komi sambærilegt mat aftur upp verður sambærilegri aðferðafræði fylgt.