afleiðingar mats á ofgreiðslu til stjórnmálasamtaka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Nú hefur komið fram hjá virtum lögmönnum að það sé mjög skýrt að ekki sé heimilt að taka við þessum styrkjum án þess að uppfylla skilyrði laganna. Nú er það þannig, eins og hv. þm. Bergþór Ólason benti á, að ríkið hefur, og hæstv. ráðherra er sá sem gætir hagsmuna ríkissjóðs, gengið mjög hart fram og bent á nákvæmlega ákvæði eins og þetta og það er ekki skýrt, þó að hv. þingmaður hafi farið með þessa ræðu, hvaða afleiðingar það hefur þegar einn aðili, stjórnmálaöflin í landinu, getur fengið styrki án þess að uppfylla skilyrði laganna. Hvaða afleiðingar hefur það?
Ég hlýt líka að spyrja, vegna þess að menn munu auðvitað líta til þessa fordæmis (Forseti hringir.) og auðvitað mun ráðherra vera að sækja hér fjármuni: Ætlar ráðuneytið ekki að láta á þetta reyna fyrir dómstólum? (Forseti hringir.) Á ekki að gæta hagsmuna skattgreiðenda í þessu máli?