156. löggjafarþing — 5. fundur,  13. feb. 2025.

afstaða ráðherra gagnvart fjórða orkupakkanum.

[10:52]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu, mjög áhugaverða spurningu. Varðandi þriðja orkupakkann þá var ég vissulega fenginn til að vera formaður Orkunnar okkar í kjölfar þess að ég skrifaði kafla í sérfræðingaskýrslu Orkunnar okkar, og ég hvet hv. þingmann og hv. þingmenn til að lesa þá skýrslu.

Það sem er hérna undir í orkumálunum og ég hef talað fyrir er að við eigum ekki að innleiða lög um raforkuviðskipti yfir landamæri. Af hverju eigum við ekki innleiða lög um raforkuviðskipti yfir landamæri og gangast undir stofnun um raforkuviðskipti yfir landamæri? Það er vegna þess að við stundum ekki raforkuviðskipti yfir landamæri. Svo einfalt er það. Og við eigum ekki heldur að innleiða lög um járnbrautir eða skipaskurði vegna þess að við erum ekki með járnbrautir og skipaskurði.

Varðandi orkupakkann þá er það t.d. þannig að í fjórða orkupakkanum — ég veit um þetta í Noregi, þeir sprengdu stjórnina á grundvelli þess að það eru þrjár tilskipanir í pakkanum af átta. Ein varðar t.d. orkunýtni. Hver er á móti orkunýtni? Þannig að það eru atriði í þeim pökkum sem eru mjög áhugaverð, ég skrifaði einmitt um þetta í skýrslunni. Og þegar ég sagði að við ættum að hafna orkupakka þrjú, hvað gerist þá? Jú, þá fer þetta aftur upp í sameiginlegu nefndina og við þurfum að semja við Brussel, í sameiginlegu nefndinni, um það hvaða tilskipanir við tökum inn í íslenska löggjöf og hverjar ekki. Við þurfum að gæta samræmis hvað það varðar. Þá eigum við ekki að innleiða lög um raforkuviðskipti yfir landamæri. Það hafa verið mín meginrök í málinu. Það er mjög margt í þessu.

En svo er líka annað stærra mál. Raforka á Íslandi hefur verið samfélagsleg þjónusta, það hefur verið litið á þetta á samfélagslegum grundvelli, t.d. sundlaugar varðandi hitaveitur og svoleiðis. Við höfum ekki markaðsvætt það. En nú er búið að markaðsvæða þetta allt saman í raforkuviðskiptum á Íslandi og við erum meira að segja komin með lög, það eru neyðarlög sem við vorum að reyna að setja í fyrra varðandi forgang heimila og smærri fyrirtækja að raforku. Ég var á fundi í gær með sveitarstjórnarmönnum, þeir vildu fá tvo markaði. Ég sagði: Hvernig gengur það út frá Evrópusambandsreglunum? Er hægt að hafa tvo markaði? Það er bara einn markaður, það er Evrópumarkaður. Það er þannig sem ég vil nálgast þetta og þannig mun ég nálgast orkupakka fjögur. Ég hvet hv. þingmann til að lesa kafla IX. Hann byrjar á bls. 49.