norrænt samstarf 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir að flytja okkur hér skýrslu og sérstaklega fyrir falleg orð í minn garð; kærar þakkir fyrir það. Mig langar líka að byrja á smáþakkarræðu til fyrrverandi Íslandsdeildar. Ég held að ég geti sagt það af fullri sannfæringu að það var einstaklega gott samstarf í Íslandsdeild á síðasta kjörtímabili öllu. Þar gegndi ég formennsku, eins og fram hefur komið, og var svo lánsöm að hafa Oddnýju Harðardóttur með mér sem varaformann, mikinn reynslubolta í þingstörfum en ekki síður í norrænu samstarfi. Ég naut þess mjög á síðasta ári, í því mikla verkefni sem við höfðum á höndum við að stýra Norðurlandaráði, að hafa slíkan reynslubolta og á ég henni mikla þökk að gjalda. Ég sagði oft að við værum svolítið eins og yin og yang; mér datt stöðugt eitthvað í hug og fékk miklar hugmyndir og svo gat hún aðeins togað mig niður og sagt: Við þurfum aðeins að hugsa þetta betur. En á endanum ýtti ég henni líka út í alls konar þannig að ég held að þegar upp var staðið hafi þetta bara verið mjög gott samstarf.
En það voru ekki bara ég og Oddný G. Harðardóttir sem stýrðum þessu því að samstarfið allt í Íslandsdeild Norðurlandaráðs var mjög gott. Í deildinni sátu með mér hv. þingmenn Teitur Björn Einarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson og Orri Páll Jóhannsson. Það er alveg ljóst að það reyndi mjög á Íslandsdeild á síðasta ári og eins og farið hefur verið inn á hér var Helsingfors-sáttmálinn stóra málið. Ég var einstaklega stolt af því hvað okkur tókst einmitt að vinna þverpólitískt saman. Eins og farið var yfir er unnið í flokkahópum, bara svipað og hér á Alþingi, það eru svona þingflokkar, og við nýttum það mjög. Við nýttum það mjög að tala saman innan Íslandsdeildar og láta okkar fólk koma skilaboðum inn í sína flokkahópa til að ná þeirri niðurstöðu sem við náðum á endanum með því að fá fram skýra afstöðu alls þings Norðurlandaráðs, þar sem allir þingmenn voru sammála um mikilvægi þess að breyta Helsingfors-sáttmálanum. Það er alveg risastórt í norrænu samstarfi og ég er mjög stolt af því og þakklát fyrir alla þá sem lögðu sitt af mörkum.
Þá verð ég líka að fá að nefna okkar frábæra landsdeildarritara, Helga Þorsteinsson, sem hélt utan um okkur allt þetta ár og auðvitað allt kjörtímabilið, og Hildur Edwald kom honum svo til aðstoðar. Eins eiga aðrir starfsmenn þingsins miklar þakkir skildar því að ég veit að hér var mikið álag á öllum; það er heilmikið fyrir okkur sem litla þjóð og lítið þjóðþing að halda eins stóran viðburð og Norðurlandaráðsþingið var. Það var auðvitað, eins og hér hefur verið komið inn á og allir ættu að vita, sérstaklega stórt þegar við fengum heimsókn frá forseta Úkraínu. Ég held að það hafi enginn setið í salnum án þess að fá gæsahúð þegar Zelensky talaði um barnsránin, öll börnin sem hefðu verið flutt frá Úkraínu yfir til Rússlands og væri verið að kenna þeim að þau væru ekki Úkraínumenn; úkraínska væri ekki tungumál og Úkraína væri ekki land. Maður fær gæsahúð bara af því að tala um þetta en grimmdin og hryllingurinn er svo mikill í þessu stríði, á öllum stöðum, á öllum vígstöðvum, með öllum þeim ráðum sem hægt er að beita í þessu stríði. Auðvitað vitum við þetta sem þingmenn en það að fá þetta beint í æð, horfandi framan í forseta Úkraínu fara yfir þessa sögu, snerti auðvitað hverja einustu taug. Þarna var líka ítrekuð samstaða Norðurlandanna með Úkraínu, með friði og öryggi og með frelsi. Það er nákvæmlega þetta sem norrænt samstarf hverfist um, að við erum líkar þjóðir með sömu gildi. Þess vegna erum við svo mikilvæg rödd á alþjóðavettvangi og ég held að það hafi kristallast þarna.
Ég verð líka að fá að nefna Svetlönu Tsíkhanovskaju sem ég lít á sem vinkonu mína. Það var einstaklega gott að fá hana og fara yfir þá hræðilegu stöðu sem uppi er í Belarús. Nýverið var forsetinn að setja upp einhvers konar leikrit um að þar hefðu aftur farið fram kosningar. Ég velti því upp hvort við ættum hreinlega að semja hér þingsályktunartillögu um að lýsa frati á það því að það voru auðvitað ekki kosningar.
Að því sögðu þá var yfirskrift Norðurlandaráðsþingsins: Friður og öryggi á norðurslóðum. Það var líka fyrirsögnin okkar í formennskuáætluninni. Þegar við komum fyrst fram með þetta voru ekki allir voðalega hrifnir; við vorum með mjög ítarlega formennskuáætlun og við vildum leggja mikla áherslu á þetta og líka á norðurslóðir. Það voru margir sem sögðu: Eigum við ekki bara að tala um Norðurlöndin og eitthvað slíkt? En okkar áhersla var sú að við vildum að augum væri beint að norðurslóðum. Í norrænu samstarfi er oft verið að horfa á Baltic-svæðið, Eystrasaltssvæðið, sem er auðvitað líka mjög mikilvægt og þar er verið að glíma við svipaðar áskoranir. En það er að einhverju leyti, held ég, hlutverk okkar Íslendinga að beina sjónum að norðurslóðum. Ég verð að segja að það sem hefur gerst núna bara á allra síðustu vikum, með fáránlegum yfirlýsingum Bandaríkjaforseta, sýnir svo ekki verður um villst mikilvægi þess að við tölum um norðurslóðir og við tölum um öryggi á norðurslóðum og frið á norðurslóðum. Og hverjir eru betur til þess fallnir en einmitt Norðurlöndin öll? Og það var eitt af því sem ég hef margoft sagt: Við vorum einhvern veginn að bjóða Norðurlandaráð fram sem ákveðið „platform“, vettvang, til að taka umræðu um mikilvægi norðurslóða. Það á ekkert rosalega marga farvegi í umræðunni. Þegar við vorum, erum reyndar enn með, með Norðurskautsráðið mátti ekki ræða öryggis- og varnarmál þar því Rússar voru þar inni. Nú hafa Rússar yfirgefið það ráð en öllum er ljóst að það er ekkert hægt að halda áfram að fullu með Norðurskautsráðið öðruvísi en að Rússar séu hluti af því. Rússar eru helmingurinn af norðurslóðum þannig að auðvitað er þetta mál í mikilli flækju. Þess vegna held ég að það sé svo mikilvægt fyrir Norðurlöndin að vera sterk rödd á þessum vettvangi, að við klemmumst ekki á milli í einhvers konar stórveldapólitík, hvort sem hún er fyrir vestan eða austan. Þess vegna hef ég oft sagt að við ættum að vera með eins konar sameiginlega stefnu eða sýn í norðurslóðamálum. Það eru öll Norðurlöndin með þá sýn að norðurslóðir ættu að vera það sem heitir á engilsaxnesku „low tension“ eða lágspennusvæði, frú forseti. En það er líka öllum ljóst að það er ekki staðan í dag, því miður.
Ég ætla líka að fá að nefna hér unga fólkið okkar, en hv. þingmaður nefndi hér Útey sem fær mig líka til að fá mikla gæsahúð. Ég vil nefna það hversu fallegt samstarf er í norræna ungmennaráðinu. Þau funduðu líka hér í tengslum við Norðurlandaráðsþingið með sitt árlega þing og ég ætla að fá að þakka forseta okkar, frú Höllu Tómasdóttur, fyrir að sýna þeim þá miklu virðingu að koma við setninguna og taka þátt í samtali við þau um frið og öryggi á norðurslóðum.
Tíminn líður hratt og það er auðvitað hægt að fara yfir ofboðslega mikið. Þetta var mjög viðamikið ár hjá okkur. Mig langar líka að nefna samstarfið við norrænu félögin. Við höfum ofboðslega öflugt fólk í forsvari fyrir norrænu félögin hér á Íslandi og þau stóðu sig vel við að koma að máli við okkur og ég vona að okkur hafi tekist að setja það í einhvern farveg að formbinda það að norrænu félögin ættu ákveðið aðgengi, eða meira aðgengi, að norrænu samstarfi í gegnum Norðurlandaráð. Ég vil þakka Hrannari og Ásdísi og þeim félögum hjá Norðurlandaráði, sérstaklega norrænu félögunum, fyrir það og ég vona að það verði framtíð í því.
Mig langar líka að nota tækifærið hér, því að ég hef oft verið í alþjóðasamstarfi frá því að ég tók sæti á þingi, og brýna hv. þingmenn til að nýta þau tækifæri sem felast í alþjóðasamstarfi, að nýta rödd okkar þar. Við börðumst fyrir því að vera fullvalda og frjálst ríki og eitt af því er að við eigum sæti við borðið á margs konar vettvangi. Ég veit að það er oft þannig hjá kjósendum að þeim finnst þetta ekki mikilvægustu eða merkilegustu störf þingmanna. En það er í mínum huga okkar hlutverk að segja þeim hversu mikilvægt það er að taka þátt í slíku starfi. Í gegnum norrænt samstarf hefur verið mikið samstarf við Eystrasaltsríkin, þing Eystrasaltsríkjanna, og ég hef eignast mjög góða vini þar. Það kennir manni svo mikið að setjast niður með þessu fólki og hlusta á þau tala á sínum ráðstefnum um sín áhyggjumál. Þá sér maður svo glöggt að við erum stundum svolítið barnaleg í okkar hugmyndafræði og stundum finnst manni eins og þær áskoranir sem við erum að glíma við, sem þó hafa verið töluverðar og miklar, séu hjómið eitt samanborið við þær áskoranir sem þessi ríki standa frammi fyrir, en þau óttast raunverulega um frið innan sinna landamæra og það að geta ekki haldið sjálfstæði sínu. Mig hefði langað að segja svo margt meira, frú forseti. Ég ætla þó að koma því að að hér er farið í skýrslu yfir lýðræðishátíð sem ég og Oddný sóttum töluvert á síðasta ári, sem forseti og varaforseti. Við ræddum mikið mikilvægi þess að skoða þann möguleika að koma á lýðræðishátíðum. Við höfum verið með fund fólksins en hann hefur ekki náð nógu miklum krafti. Ég ætla bara að leyfa mér að hvetja bæði þingmenn og nýkjörinn forseta til að skoða þann möguleika að þingið geti einhvern veginn orðið virkari þátttakandi í slíkri hátíð eins og er til svo mikillar fyrirmyndar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að nefna ávallt þau sem talað er um með fullu nafni.)