156. löggjafarþing — 5. fundur,  13. feb. 2025.

Vestnorræna ráðið 2024.

77. mál
[11:56]
Horfa

Frsm. ÍVN (Jón Gnarr) (V):

Frú forseti. Samkvæmt hefð er ég hingað kominn til að kynna ársskýrslu Vestnorræna ráðsins og geri það sem nýkjörinn formaður ráðsins. Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þingmanna frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Í ráðinu sitja sex þingmenn frá hverju landi. Aðalmenn í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins árið 2024, fram að kosningum 30. nóvember, voru Steinunn Þóra Árnadóttir formaður, þingflokki Vinstri grænna, Eyjólfur Ármannsson varaformaður, þingflokki Flokks fólksins, Jón Gunnarsson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingflokki Miðflokksins, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingflokki Viðreisnar, og Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokksins.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins tók virkan þátt í starfi ráðsins á árinu og vann þar ötullega að framgangi vestnorrænna mála á Alþingi. Íslandsdeildin lagði fram tillögu til þingsályktunar á 154. þingi um framfylgd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundinum 2023. Tillagan var samþykkt sem ályktun Alþingis nr. 14/154, hinn 30. apríl 2024. Vestnorræna ráðið er ólíkt öðru alþjóðastarfi sem Ísland tekur þátt í að því leyti að allar tillögur sem samþykktar eru í ráðinu eru jafnframt lagðar fram til samþykktar á þjóðþingum landanna þriggja.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins hélt fimm fundi á árinu þar sem þátttaka og undirbúningur fyrir fundi Vestnorræna ráðsins var ræddur. Á þeim fundum voru drög að nýjum starfsreglum einnig á dagskrá og kom þar Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri ráðsins, á fund til að kynna þau. Á hefðbundnu starfsári kemur ráðið tvisvar sinnum saman, annars vegar á þemaráðstefnu að vetri og hins vegar á ársfundi að hausti. Á árinu 2024 átti þemaráðstefnan að fara fram í Tasiilaq á Grænlandi en vegna veðurs var hún haldin rafrænt. Við þekkjum það sem höfum unnið í svona norrænu samstarfi, sérstaklega gagnvart Grænlandi og Færeyjum, að veður setur mjög gjarnan strik í reikninginn og hefur áhrif á samgöngur. Ársfundurinn fór svo fram í Þórshöfn í Færeyjum, þeim yndislega bæ. Þema ársins 2024 var vestnorræn tungumál í stafrænum heimi; mjög brýnt og mikilvægt mál. Þrjú erindi voru flutt á ráðstefnunni sem fjölluðu á mismunandi hátt um gervigreind og vestnorrænu tungumálin þrjú; grænlensku, íslensku og færeysku. Tungumálin eru vissulega mjög misjafnlega langt komin á þessu sviði og mér finnst gaman að geta sagt frá því að þar telst íslenskan komin lengst. Tungumálin eru öll lítil tungumál eða jafnvel örtungumál og gjarnan þrautin þyngri að fylgjast með og halda í við sífellt örari þróun stafrænna lausna og svo auðvitað gervigreindar.

Ársfundur ráðsins fór eins og áður sagði fram í Þórshöfn í Færeyjum í lok ágúst. Á honum voru samþykktar tvær ályktanir sem sendar verða til þjóðþinga landanna þriggja til umfjöllunar. Auk þess samþykkti fundurinn tvær yfirlýsingar. Í fyrri ályktuninni var lagt til að styrkja samstarfið enn meira á milli Færeyja, Grænlands og Íslands í tengslum við tungumál og máltækni. Tryggja þyrfti lífsþrótt vestnorrænu málanna og auka áherslu á fjárfestingar í máltækniþróun.

Í síðari ályktuninni var lagt til að menntamálaráðherrar vestnorrænu landanna fundi um stefnur landanna í málefnum tungumála með tilliti til gervigreindar og kanni hvort grundvöllur sé fyrir auknu samstarfi. Þá voru ráðherrarnir hvattir til að kortleggja þá þróun og uppbyggingu sem á sér stað heima fyrir, hvetja til aukinnar samvinnu meðal aðila á þessu sviði og greiða götu þeirra í einhverju slíku hugsanlegu samstarfi.

Yfirlýsingarnar sneru annars vegar að því að Vestnorræna ráðið lýsti yfir stuðningi við þær grænlensku konur og stúlkur sem brotið var á í lykkjumálinu svokallaða og baráttu þeirra fyrir viðurkenningu og réttlæti. Árið 2024 stefndu 143 konur danska ríkinu fyrir að hafa staðið fyrir því að lykkjunni var komið fyrir í 4.500 grænlenskum konum og stúlkum á árunum 1966–1974 og í flestum tilvikum án þeirra vitneskju eða foreldra eða forráðamanna þeirra og var þetta gert í þeim tilgangi að draga úr fólksfjölgun í landinu.

Þegar málið komst upp olli það auðvitað gríðarlega miklum sársauka og reiði og hneykslan meðal fólks, skiljanlega. Málið hefur verið eitthvað til umfjöllunar í fjölmiðlum hér á Íslandi og virtur íslenskur kvensjúkdómalæknir hefur sagt þetta glæpsamlegt athæfi. Múte Bourup Egede, forsætisráðherra Grænlands, hefur gengið jafnvel enn þá lengra og svo langt að saka dönsk yfirvöld hreinlega um að hafa framið þjóðarmorð gegn grænlensku þjóðinni. Það eru stór orð og þung en þetta er mikið réttlætis- og mannréttinda- og auðvitað kvenréttindamál.

Hin yfirlýsingin er svo stuðningsyfirlýsing Vestnorræna ráðsins við sjálfstæða aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja að Norðurlandaráði.

Á ársfundinum samþykkti Vestnorræna ráðið nýjar starfsreglur. Veigamestu breytingarnar voru breytingar á reglum um tungumál sem notuð eru í starfi ráðsins. Fram til þessa hefur, eins og víða annars staðar, vinnutungumálið verið danska eða hin svokallaða blandinavíska og fundir hafa farið fram á dönsku og öll skjöl og fundargerðir og dagskrár jafnframt verið á dönsku en samkvæmt nýju starfsreglunum eru tungumál Vestnorræna ráðsins nú grænlenska, íslenska og eitthvert norrænt tungumál. Öll meginskjöl eru gefin út á færeysku, grænlensku, íslensku og norrænu tungumáli, og ensku. Fundargerðir og dagskrár eru gefnar út á norrænu tungumáli og á ensku.

Á persónulegum nótum fagna ég þessu mjög eftir að hafa tekið þátt í fjölda samnorrænna ráðstefna þar sem Svíar, Norðmenn og Danir láta móðan mása á sínu ylhýra móðurmáli og svo erum við Íslendingar dæmd til að reyna að bjarga okkur eins vel og við getum á einhverju því skandinavíska máli sem við kunnum eða babla bara eitthvað á blandinavísku. Því miður eru margir sem kjósa að þegja frekar en að babla eitthvað, gjarnan með orðaforða tíu ára barns. „Norden er i orden“ segir máltækið, og þar á íslensk tunga að standa jafnfætis hinum norrænu málunum og fá að hljóma. Að íslenska fái að hljóma er bara mikilvægasti hluti þess að halda henni á lífi því tungumál, eins og við vitum öll, deyja í þögn. Í starfsreglum segir að forsætisnefnd muni setja frekari reglur varðandi túlkun og þýðingar. Við munum að sjálfsögðu halda þessari góðu vinnu áfram.

Í tengslum við ársfundinn voru barna- og ungmennabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins afhent samkvæmt venju en færeyski rithöfundurinn Elin á Rógvi hlaut verðlaunin fyrir bókina Flytifuglar.

Á ársfundinum tók Doris J. Jensen, formaður grænlensku landsdeildarinnar, við formennsku í ráðinu en fram að því hafði Jenis av Rana, formaður færeysku landsdeildarinnar, gegnt formennsku frá ágúst 2023. Í þessu ráði er sá háttur hafður á að löndin skiptast á að fara með formennsku eitt ár í senn.

Þá hélt Vestnorræna ráðið í samstarfi við Norðurlandaráð þingmannaráðstefnu um norðurslóðamál og tvær málstofur á Hringborði norðurslóða sem fór fram í Reykjavík í október. Önnur málstofan bar yfirskriftina „réttindi hinsegin fólks á norðurslóðum“. Þar var fjallað um réttindi og réttindabaráttu hinsegin fólks á norðurslóðum og þær áskoranir sem því fylgja. Hin málstofan bar yfirskriftina „framtíð þingmannasamstarfs á norðurslóðum“. Þar var fjallað um þær áskoranir og breytingar sem fram hafa komið í samstarfi á norðurslóðum.

Venju samkvæmt tók forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins þátt í þingi Norðurlandaráðs sem fór fram í Smiðju og Ráðhúsi Reykjavíkur að þessu sinni. Í forsætisnefnd eiga formenn landsdeildanna þriggja sæti; einn frá Íslandi, einn frá Færeyjum og einn frá Grænlandi. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundaði við það tækifæri með forsætisnefnd Norðurlandaráðs og auk þess með samstarfsráðherrum Vestur-Norðurlandanna. Fundarefnið var hin fjölmörgu sameiginlegu málefni ráðanna tveggja.

Virðulegi forseti. Ég hef nú rakið í stuttu máli starfsemi Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins en vil að öðru leyti bara vísa til ársskýrslunnar í heild sem er aðgengileg á vef Alþingis.

Ég hlakka gríðarlega mikið til vinnunnar fram undan. Ég tel mörg spennandi tækifæri í auknu samstarfi landanna. Við deilum náttúruauðlindum, menningu og alveg hreint magnaðri sögu. Til forna voru tvær Íslendingabyggðir á Grænlandi í margar aldir, stórmerkilegar fornleifauppgötvanir sem gerðar hafa verið þar og munir sem hafa verið að koma undan sífrera vegna hlýnunar. Svo hefur Grænland auðvitað verið í brennidepli heimsfrétta undanfarið vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta og ekki veit maður alltaf alveg hvort þeim ágæta manni er alvara eða ekki. En ég hef samt sagt það bæði í gríni og alvöru að líklega er þetta einhver allra besta landkynning sem Grænland hefur nokkurn tímann fengið. En auðvitað vonum við að allt fari þetta friðsamlega fram. Nú eru kosningar fram undan á Grænlandi og mikil pólitísk gerjun og mjög erfitt að spá hvað verður og hvað framtíðin ber í skauti sínu. En við í ráðinu munum fylgjast náið með framvindu mála þar.

Að lokum langar okkur í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins að þakka þeim sem sátu í Íslandsdeildinni 2024 og þakka þeim kærlega fyrir þeirra góðu störf á liðnu ári.

Undir þessa skýrslu ritar Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins en í henni sitja ásamt mér Ingibjörg Davíðsdóttir varaformaður, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigurjón Þórðarson.