Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2024.
Forseti. Ég vil ítreka þakkir til þingmannsins, og nú fyrir andsvarið, og taka undir lokaorðin um að EES-samningurinn hafi orðið til heilla. Ég vildi með þessu andsvari bara minna þingheim á og vekja til umhugsunar að þegar ráðist var í samningana um Evrópska efnahagssvæðið var sú samningagerð að stærstum hluta í höndum ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar þar sem framan af sátu Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag og síðan Borgaraflokkurinn í restina. Og það var bara Alþýðuflokkurinn sem hafði borið þetta mál uppi í aðdraganda kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn var á þessum tíma þeirrar skoðunar að fara ætti í tvíhliða viðræður — við getum kallað það svissnesku leiðina — sem hefði verið skelfilegt fyrir Ísland, sá samningur hefði úrelst á mjög stuttum tíma, en skipti um skoðun án þess að gefa það upp fyrir kosningarnar þegar svokölluð Viðeyjarstjórn varð til, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem síðan kláraði málið og höfðu þá sumir af gömlu samstarfsflokkum Alþýðuflokksins snúist gegn málinu. (Forseti hringir.) Þeir raunar klofnuðu. Höfum þetta hugfast þegar við ræðum um þessi mál (Forseti hringir.) og hvernig pólitískar línur liggja.