Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2024.
Virðulegi forseti. Ég tek til máls um skýrslu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES fyrir árið 2024 og ætla að ræða um ýmis tengd mál eins og forseti hefur leyft að sé gert í tengslum við þetta. Engu að síður finnst mér mikilvægt að við tölum aðeins um næstu verkefni þessarar nefndar og hvað sé fram undan. Hér í umræðunni var Úkraína t.d. nefnd og það getur auðvitað vel farið svo að niðurstaðan verði, hver veit nema á næstu vikum, að taka þurfi afstöðu til vangavelta um með hvaða hætti Úkraína muni tengjast Evrópu.
Hér áðan var nefnd hugmyndin um hvort Úkraína gæti farið inn í EFTA eða hve tengd Úkraína gæti orðið Evrópusambandinu. Ég held að við ættum ekki að eyða allt of miklum tíma í að ræða þá hugmynd að Úkraína fari inn í EFTA. Ég held að á því séu tveir vinklar. Í fyrsta lagi er Evrópusambandið í rauninni tvíþætt. Það er annars vegar hið pólitíska bandalag og síðan sameiginlegir markaðir og allt sem því tengist. Við á Íslandi höfum ákveðið í gegnum tíðina að taka þátt í þessum sameiginlega markaði en standa eins mikið og hægt er utan við hið pólitíska bandalag sem Evrópusambandið er. Ég hygg að það sem Úkraínumenn vilja sé hið þveröfuga. Ég held að raunin sé svolítið að hugur þeirra standi í fyrsta lagi til þess að taka þátt í því pólitíska bandalagi sem Evrópusambandið er — auðvitað líka efnahagsbandalaginu en staðsetningin sem þau eru að hugsa um er að vera partur af Vesturlöndum og tengd þeim eins sterkum böndum og hægt er. Þess vegna finnst mér afar ólíklegt að niðurstaða einhverra samtala yrði sú að Úkraína myndi falast eftir því að ganga til liðs við EFTA og gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu en fallast á að standa utan við stofnanir Evrópusambandsins. Sú umræða sem ég hef heyrt undanfarna daga innan úr álfunni bendir frekar til annarrar lausnar, að Úkraínu verði mögulega boðið að ganga hratt til liðs við einhvers konar pólitískt bandalag án þess að þurfa strax að undirgangast allt það sem snýr að innri markaðinum. Aukaaðildin myndi þá fela í sér aðild að hinu pólitíska bandalagi frekar en fulla samvinnu við efnahagslega bandalagið, hinn frjálsa markað.
Hin hliðin er svo: Ættum við að vilja það? Ættum við að vilja falast eftir því að Úkraína myndi ganga inn í EFTA og taka upp EES-samninginn án þess að ganga í Evrópusambandið? Ef við tölum um hagsmuni Íslands skal ég segja að ég sé ekki alveg að hagsmunir okkar myndu liggja þar. Ef við værum t.d. að gera fríverslunarsamninga við þriðja ríki þá sé ég ekki alveg að íslensk staða væri sterkari ef við hefðum ekki bara Noreg og Liechtenstein í herberginu heldur væri Úkraína þar líka, sem er ríki sem hefur dálítið öðruvísi hagsmuni þegar kemur að framleiðslu eða öðrum þáttum. Síðan má auðvitað velta því fyrir sér að ef við segjum að hugmyndin yrði að Úkraína myndi ganga inn í EFTA og EES-samninginn þá hlytu Úkraínumenn að taka upp öll tæknilega erfiðu skrefin sem nauðsynleg eru til að vera aðili að hinum sameiginlega markaði, sem sagt sameiginlega löggjöf um hvíldartíma, framleiðslu á hinu og þessu og hverju öðru. Og þá veltir maður fyrir sér af hverju fólk í þeirri stöðu, sem er búið að uppfylla öll lagalegu skilyrðin sem felast í EES-samningum, ætti síðan að velja: Nei, við ætlum ekki að vera með í pólitíska bandalaginu. Mér fyndist það mjög skrýtið. Ég held að það sé ekki ástæða til að eyða miklum tíma í þessa sviðsmynd. Ég held að það sé mjög ólíklegt að Úkraína myndi vilja ganga inn í EFTA en ekki Evrópusambandið og ég sé ekki endilega að við myndum sjá hag okkar í því að berjast fyrir því að það gæti orðið niðurstaðan.
Mig langar aðeins að nefna nokkra hluti sem snúa t.d. að hagsmunagæslu. Allt þetta snýst vissulega um hagsmunagæslu og það er rétt að við þurfum að gæta hagsmuna okkar. Ég held reyndar að það sé engin þversögn í því að vera annars vegar að sækja um aðild að Evrópusambandinu, að fara þá leið, og síðan að gæta hagsmuna okkar. Ef við værum t.d. í einhverju því ferli að tengjast Evrópusambandinu sterkari böndum með aðildarviðræðum þá myndum við af praktískum ástæðum hafa fleira fólk á staðnum og þá myndum við hafa betri aðgang að stofnunum Evrópusambandsins. Á sínum tíma heimsótti ég Brussel skömmu eftir að við höfðum sent inn bréf og í rauninni sagt, með leyfi forseta, „we were on a break,“ að við værum sem sagt að taka einhvers konar hlé frá þessum viðræðum. Öll þau sem voru á staðnum sögðu mér að það hafi verið mikill munur á því hvernig okkur gekk að fá fundi, að fá samtal við ráðafólk á staðnum á meðan við vorum í aðildarferli. Þú talar aðeins öðruvísi við einhvern sem er í þann mund eða hefur gefið út að hann hyggist ganga inn í einhvern klúbb — af því að hann er þá væntanlega bandamaður þinn í einhverjum atkvæðagreiðslum og einhverjum samningum í því bandalagi — heldur en þegar þú talar við einhvern sem er bara fyrir utan að reyna að gæta sinna hagsmuna. Ég held að það sé alls ekki svo að það sé erfiðara að gæta hagsmuna okkar ef við erum á sama tíma að falast eftir því að ganga inn í Evrópusambandið eða höfum alla vega gefið út að það sé okkar vilji.
Ég vil samt taka það fram að það er ekkert álitamál hvort umsókn okkar sé enn þá virk. Evrópusambandið hefur tekið af öll tvímæli um það. Það var ágætis diplómatískur árangur í Brussel hjá hæstv. utanríkisráðherra að talsmaður Evrópusambandsins hafi gefið það skýrt út að umsókn okkar væri gild og virk. Fólk þekkir ekki stofnanir Evrópusambandsins ef það segir: Maður getur ímyndað sér að vegna þess að þetta er einhver talsmaður, einhver blaðafulltrúi, þá skipti rödd hans engu máli. Það er þannig með Evrópusambandið að talsmenn eru í raun þeir einu sem hafa leyfi til að gefa út skuldbindandi yfirlýsingar varðandi afstöðu Evrópusambandsins. Það að talsmaður Evrópusambandsins gefi það út að umsóknin sé gild og virk þýðir einfaldlega að að mati Evrópusambandsins er umsókn okkar gild og virk.
Hér nefndi fólk sjónarmið annarra þingmanna í öðrum löndum sem hafa sagt að við ættum að ganga inn eða ekki. Ég hef heyrt þingmenn frá öðrum löndum sem hafa hvatt okkur til að ganga í Evrópusambandið en auðvitað eru skoðanir misjafnar. Við í Viðreisn fengum um daginn heimsókn frá systurflokkum okkar, nokkrum þingmönnum systurflokka á Evrópuþinginu, úr Alde, og ræddum við þau og þau voru frekar á því að hvetja okkur til að fara í þessa vegferð og voru jákvæð í þess garð. Auðvitað fer það líka svolítið eftir því við hvern þú talar. Mér fannst skilaboðin núna, samanborið við áður, raunar miklu meira á þá leið að fólk sæi einhver tækifæri til að ræða opinskátt um ýmsar lausnir, vegna þess að Evrópusambandið er á þannig stað að það vill gjarnan sýna fram á að það sé enn þá bandalag sem fólk hefur áhuga á að ganga í og enn þá bandalag sem sé virkt og virt.
Ég tek auðvitað undir með þeim sem hafa sagt, og vísa til sögunnar, að oftast nær hafi fulltrúar Íslands í þessari nefnd talað einum rómi í mikilvægum málum og varðandi hagsmuni Íslands. Ég tek að einhverju leyti undir það en það snýr auðvitað í báðar áttir. Nú hefur ríkisstjórn Íslands t.d. ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna við Evrópusambandið muni fara fram. Þá er kannski bara ágætt að við tölum öll svolítið einum rómi um það og útskýrum þegar við hittum kollega okkar erlendis að þetta sé núna stefna Íslands. Hér glotta einhverjir þingmenn en það eru auðvitað líka hagsmunir okkar að rödd íslensku þjóðarinnar sé tekin alvarlega, að ef íslenska þjóðin ákveður í þjóðaratkvæðagreiðslu að sækja um aðild að Evrópusambandinu sé það tekið alvarlega, að þjóðir sem hlusta á það taki það alvarlega. Óháð því hvaða skoðanir menn hafa á því þá finnst mér mikilvægt að við útskýrum þessa vegferð, útskýrum hvað í henni felst og öflum fylgis við þá hugmynd að sama hver niðurstaðan verður, og sérstaklega auðvitað ef hún verður jákvæð, þá muni fólk taka vel í þessar hugmyndir.
Og talandi um hagsmunagæslu þá er það auðvitað líka þannig og ég finn það sjálfur að það er miklu meiri áhugi meðal samstarfsflokka okkar erlendis t.d. á að heimsækja Ísland og ræða við okkur um þetta ferli. Ég hvet í rauninni þingmenn í öðrum flokkum, jafnvel þá sem myndu kannski flokkast með flokkum sem eru efins um aðild að Evrópusambandinu — það eru auðvitað mikil tækifæri. Það er áhugi á Íslandi út af þessum skrefum.
Þannig að ef fólk er í EPP — sem Sjálfstæðisflokkurinn er loksins kominn aftur í eftir þessa skrýtnu vegferð inn í þennan flokkahóp sem var stofnaður í kringum íhaldsmennina, sem fór síðan svolítið á hliðina — þá er bara kjörið tækifæri að hafa samband við systurflokka í EPP og eiga gott samtal við þá um þessi mál og afla stuðnings við þá hugmynd að aðildarferli okkar verði þá bara hratt og gott þegar og ef íslenska þjóðin ákveður að stíga það skref.
Ég þakka annars kærlega fyrir góða umræðu, mér fannst hún vönduð og skemmtileg, og hvet síðan nefndina til dáða og til að gæta hagsmuna Íslands og gæta hagsmuna íslensku þjóðarinnar í því ferli sem fram undan er.