NATO-þingið 2024.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við vitum að skýr yfirráð Íslands yfir íslensku flugstjórnarsvæði er gríðarlega mikilvægt og almenningur áttar sig ekki vel á því hversu umfangsmikið það er og hversu mikla ábyrgð við berum í Norður- Atlantshafi. Nýlegar fréttir af því hvað gæti hent okkur ef við yrðum t.d. fyrir sambandsleysi beindu sjónum almennings að því hvað mikið er í húfi. Þetta þykist ég vita að hv. þingmaður sé mun fróðari um en akkúrat ég. Ég held að þarna sé um að ræða stórt þjóðaröryggismál fyrir okkur, ekki bara á vettvangi NATO, en ég held að það sé mikilvægt að við komum okkur saman um það að ræða þessi norðurslóðamál á öryggissvæðum sem eru í umsjá NATO-ríkja á viðeigandi vettvangi. Ég fyrir mína parta lýsi eindregið yfir þeim vilja mínum að koma að því samtali og lyfta íslenskum hagsmunum til jafns við hugsanlega hagsmuni Grænlands og mögulega Danmerkur eftir því sem þeir fara saman í ljósi nýjustu fregna. Það væri að mínu mati slæmt ef við skildum þennan þátt eftir í því samtali sem er fram undan.
Ég ætla líka að segja, í ljósi þess að við höfum þessar miklu og ríku skyldur á þessu svæði, að það er mikilvægt að það fái meiri áheyrn hér í þingsal hversu mikilvægt er að þetta sé vel mannað af hálfu íslenskra aðila. Það er hins vegar efni í allt aðra umræðu og hún á ekki við hér.