NATO-þingið 2024.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég veit að ég var ekkert endilega að setja hann í eitthvað rosalega sanngjarna stöðu að gefa honum tvær mínútur til að kryfja heimsmálin með þessum hætti. En það er samt sem áður áhugavert að velta þessu fyrir sér og við erum auðvitað bara stundum bundnir af því þegar við erum að tala, hvort sem það er úr þessu púlti eða í viðtölum eða hvað það er, að það eru alltaf einhver tímamörk sem setja okkur einhverjar skorður. En ég fagna því að hv. þingmaður ætli kannski að fara aðeins betur yfir þetta í seinna andsvari þannig að ég ætla svo sem ekki að bæta miklu við. Mér hefur alltaf fundist þessi umræða líka um fjárframlög okkar Íslendinga og annarra þjóða þarna inn, eins og reyndar hv. þingmaður kom aðeins inn á í ræðu sinni áðan, svolítið áleitin spurning fyrir okkur sem erum auðvitað í svolítið öðrum veruleika heldur en aðrar þjóðir að því leytinu til að við erum ekki að leggja pening í beinan hernað hér innan lands. Við erum ekki að reka neinn her, þannig að okkar framlög koma auðvitað fram með kannski svolítið öðrum hætti, svo ég bæti nú öðru pínulitlu lítilræði inn í þessa jöfnu sem hv. þingmaður hefur tvær mínútur til að kryfja.