156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

evrópskur her og aðild að NATO.

[15:05]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn. Nú er það svo að Ísland er í virku sambandi bæði við Bandaríkin og Evrópu og Evrópusambandið. Við erum í EES, við erum hluti af innri markaðnum en við erum líka aðilar að NATO. Mörg ríki Evrópusambandsins eru í Evrópusambandinu og í NATO og eiga þannig í samskiptum við Evrópuríki og við Bandaríkin og því til viðbótar höfum við líka þennan tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Mjög margar þjóðir, þar með taldir Danir, þrátt fyrir að þær séu með sinn eigin her, séu í Evrópusambandinu, séu í NATO, eiga líka í alls konar samningum beint við Bandaríkin. Þannig er bara hinn alþjóðlegi heimur. Þetta verður áfram staðan á Íslandi. Ég kom því skýrt til skila að skoðun íslenskra stjórnvalda væri sú að þrátt fyrir að það kynnu að verða einhverjar breytingar í samstarfi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna með breyttum áherslum nýrra stjórnvalda væri það gríðarlega mikilvægt fyrir íslensk stjórnvöld að eiga áfram gott samband við Bandaríkin. Það mun ekki breytast þó að það verði kannski breytingar á áherslum út af nýrri ríkisstjórn eða nýjum forseta í Bandaríkjunum.

Varðandi þessa umræðu um að ótímabært sé að ræða evrópskan her þá er ég þarna, hv. þingmaður, ekki að vitna í mínar eigin skoðanir. Þarna er ég búin að eyða þremur dögum með leiðtogum stærstu landa heimsins sem allir eru að leggja áherslu á það, m.a. utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Kaja Kallas, að það að ræða evrópskan her sé ótímabært vegna þess að flest þessara ríkja eru í NATO og eru að beita sér með herstyrk sínum í gegnum NATO. Það sem hefur verið gerð krafa um er að það sé aukin samhæfing þessara herdeilda eða þessara viðbragðsaðila innan NATO. Þannig að þetta er bara spurning um skipulagsmál. Þetta er ekki spurning um að hafna því að það þurfi að styrkja varnir Evrópu þannig að þetta er að einhverju leyti bara útfærslumál.