156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

aðgerðir ráðherra vegna dóms Hæstaréttar gegn ÁTVR.

[15:10]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mig langar að varpa hér fram spurningum varðandi starfshætti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins annars vegar og það eftirlitshlutverk sem hæstv. fjármálaráðherra hefur með þeirri ríkiseinokunarverslun. Í desember síðastliðnum, 4. desember nánar tiltekið, féll dómur Hæstaréttar nr. 19/2024 í máli innflytjenda gegn áfengisversluninni þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að ÁTVR hefði brotið gegn lagaáskilnaði stjórnarskrárinnar, nánar tiltekið 75. gr. stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi, með því að taka úr sölu tvær öltegundir á þeirri forsendu að þær uppfylltu ekki reglur verslunarinnar um framlegð. Málið laut að því að í lögum er hins vegar kveðið á um að reglurnar og viðmiðunarreglur í innkaupsreglum ÁTVR eigi að lúta að eftirspurninni en ekki framlegð. Það liggur alveg fyrir skýrt þetta brot áfengisverslunarinnar í þessum efnum. Nú eru liðnir meira en tveir mánuðir síðan að dómurinn féll en hið ólögmæta ástand varir enn og jafnvel gott betur því að mér skilst að ÁTVR hafi heykst á því að taka inn fleiri vörur og sé að vinna að einhverjum nýjum viðmiðum. Miðað við þær upplýsingar sem koma fram í samráðsgáttinni þá standast þær nýju reglur sem ráðuneytið hefur kynnt ekki dóm Hæstaréttar.

Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra af hverju ráðuneytið eða hann sjálfur hafi ekki brugðist við þessum dómi og hvort hæstv. fjármálaráðherra telji að honum sé heimilt að frysta þetta ólögmæta ástand á meðan verið sé að vinna að nýjum viðmiðum. Og telji hann sér heimilt að frysta þetta ástand, á hverju byggir hann þá heimild sína?