156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

skipan valnefnda vegna vals í stjórnir stærri fyrirtækja.

[15:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar. Það er nú svo að við í Framsókn fögnum því þegar góð mál eru tekin frá fyrri ríkisstjórn og eru endurunnin, ef svo má að orði komast, og jafnvel nýtt áfram. En tilgangur og andi laganna er að koma í veg fyrir að hið raunverulega vald sé ekki í reynd í höndum ráðherrans eins. Ég vil spyrja ráðherra: Finnst ráðherra það samræmast markmiði laganna um gagnsæi og fagleg vinnubrögð ef einungis er tekið tillit til sjónarmiðs ráðherrans við skipan valnefnda? Kemur ekki til greina í huga hæstv. ráðherra, til að undirstrika temprun valds, að t.d. stjórnarandstaðan tilnefni einnig nefndarmann í valnefndina að lágmarki, sem ráðherra skipar, svo lengi sem skilyrði laganna um hæfi séu uppfyllt?