156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Indlands.

91. mál
[16:01]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég tek undir það að við eigum að nýta hvert tækifæri sem við höfum í þessu umhverfi sem við búum við í dag til að sækja á erlenda markaði og það er nákvæmlega það sem við höfum gert og við höfum einmitt sótt miklu víðar fram heldur en t.d. vinir okkar í Evrópusambandinu. Við vorum á undan þeim t.d. að gera fríverslunarsamning við Kína, svo ég nefni það nú sérstaklega, og höfum verið að nýta þessi færi vel en við þurfum auðvitað að gæta að því að fylgja þessu vel eftir og ég treysti hæstv. ráðherra sannarlega til þess. Ég veit til hvers hugur hennar stendur í þessum málum.

Við hæstv. ráðherra höfum iðulega verið sammála þegar kemur að táknrænum stuðningi við þjóðir hvað varðar fríverslun enda höfum við báðar tekið þetta upp á alþjóðavettvangi og í okkar starfi fyrir þingmannanefndina og gríðarlega mikilvægt að halda því til haga og ég hvet bara hæstv. ráðherra áfram til dáða.