fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Indlands.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað fyrst og fremst til að fagna því að hér svífi andi fríverslunar yfir vötnum af því að mér sýnist sem flestir þeir hv. þingmenn sem tekið hafa til máls undir þessu máli sem og í málinu á undan, sem fjallaði um uppfærslu á fríverslunarsamningi okkar við Chile, fagni því að við séum að gera fríverslunarsamning. Heimurinn kannski orðinn þannig að það sem einu sinni var er nú liðið undir lok, menn voru allir komnir á þetta en þetta er ekki jafn sjálfsagt lengur, en það er sjálfsagt að fagna því að það sé tilfellið í þessum sal.
Af því að við erum að ræða hér um fríverslunarsamning við Indland þá getur maður ekki orða bundist að lýsa ákveðnu dálæti á þessu risastóra lýðræðisríki sem Indland er og á sögu þess og þeim í raun lýðræðisvenjum sem þar hafa komist á. Það er alveg magnað að fylgjast með því þegar yfir milljarður manna gengur til kosninga og skiptir í einhverjum tilfellum um sitjandi stjórn. Sumum kann að líka betur eða verr við þær stjórnir sem þar eru en þær eru þó þannig að þær hafa verið kosnar með lýðræðislegum hætti í oft mjög glæsilegum, nútímalegum kosningum þar sem lýðræðisveislan, ef við notum það klisjukennda orð, færist á milli héraða, frá einu til annars, og þannig gengur þetta koll af kolli. Ég fylgist alltaf af dálæti með þegar þetta lýðræðisferli í Indlandi hefst og hvernig því vindur fram vegna þess að þetta er ákveðið svar við þeim fullyrðingum, þeim hugmyndum, að lýðræði eigi við ákveðnar menningarlegar aðstæður sem skapast hafa í litlum og meðalstórum ríkjum sem hafa ákveðna arfleifð en að það eigi ekkert við úti um allan heim. Ef lýðræðið getur átt við í jafn stóru landi og Indland er þá á það við alls staðar.
Þessi samningur er gerður í samfloti við EFTA-ríkin og ég fagna því. Mér finnst gott að við gerum samninga í samfloti við EFTA-ríkin. Hér hefur samanburður á EFTA og Evrópusambandinu verið nefndur og þetta eru flókin mál sem ég játa að ég er ekki að stíga mín fyrstu skref í en hef kannski ekki kynnt mér mjög vel hingað til. Ég bað gervigreindina um að bera saman fyrir mig þá fríverslunarsamninga sem Ísland hefur gert í gegnum EFTA eða hefur gert sjálfstætt og þá viðskiptasamninga sem Evrópusambandið hefur gert. Það er sumt líkt og sumt ólíkt og ég fæ þau svör að EFTA-ríkin, og þá Ísland líka, hafi gert yfir 30 fríverslunarsamninga, þar með talið við Kína, sem ná til yfir 40 landa, en Evrópusambandið hafi gert yfir 40 fríverslunarsamninga sem ná til 70 landa plús. Og svo má auðvitað finna dæmi um ríki sem ein af þessum blokkum hefur gert fríverslunarsamning við en ekki önnur.
Indland er núna dæmi um ríki sem EFTA undirritar fríverslunarsamning við. Slíkur fríverslunarsamningur er í undirbúningi og samningum hvað Evrópusambandið varðar. Það er rétt að Kína er dæmi um landsvæði sem við höfum gert fríverslunarsamning við en ekki Evrópusambandið. Aftur á móti er Japan dæmi um land sem Evrópusambandið hefur náð að gera fríverslunarsamning við en ekki við. Þegar við horfum á kortið þá er fríverslunarnet Evrópusambandsins betra, t.d. þegar kemur að Afríku, en þegar kemur að Austurlöndum fjær þá hefur net EFTA í raun náð örlítið lengra. Og svo er gríðarlegur munur á þessum tveimur markaðsstærðum, svo það sé líka sagt. EFTA-ríkin ná til sirka 14 milljóna manna en Evrópusambandið er nær hálfur milljarður. Svo er auðvitað sá munur á, sem hér hefur komið fram og sumum þykir mikilvægur, að Evrópusambandið er tollabandalag en EFTA er ekki tollabandalag sem slíkt vegna þess að ríkin geta viðhaft sínar eigin tollareglur innbyrðis. Það kunna auðvitað að vera á þessu kostir og gallar og að undanförnu hefur verið tilhneiging hjá sumum ríkjum til að fara frekar í tvíhliða fríverslunarsamninga. En maður veltir t.d. fyrir sér; þegar við erum með tvö ríki, eins og ef maður tekur nýlegt dæmi um Bandaríkin og Kólumbíu þar sem í gildi var tvíhliða fríverslunarsamningur — mér finnst ekki algerlega einhlítt að lítil og meðalstór ríki séu alltaf í sterkari stöðu þegar þau gera sína eigin fríverslunarsamninga en eru ekki partur af fríverslunarbandalagi eða jafnvel tollabandalagi. Það kann líka að vera í því ákveðin vörn.
Svo er auðvitað alveg rétt að við þurfum að feta ákveðinn meðalveg og mér sýnist að það hafi kannski verið tilhneigingin hjá Evrópusambandinu að hafa þessa samninga stærri í sniðum og fjalla að einhverju leyti líka um fleiri hluti en aðeins hugverkavernd og tolla og flutning á vörum. Það má hafa skoðun á þeim sjónarmiðum. En stundum er það svolítið þannig að mögulega er sumt af því sem verið er að gera við gerð þessara samninga ákveðið svar við áhyggjum sem fólk í viðkomandi ríkjum hefur af því að lenda í einhverjum ósanngjörnum viðskiptaaðferðum eða vera að versla við ríki þar sem hugmyndir um aðbúnað starfsfólks og svona eru öðruvísi en hjá okkur.
Frú forseti. Ég fagna þessari umræðu og hlakka til að taka alla þessa samninga fyrir í hv. utanríkismálanefnd. Ég hygg að miðað við umræðu hér ættu bæði þessi þingmál að fá nokkuð skjótan framgang hér í þinginu.