156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Indlands.

91. mál
[16:12]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Við erum hér að fjalla um þingsályktunartillögu þar sem við veitum ríkisstjórninni heimild til að fullgilda samning milli EFTA-ríkjanna og Indlands og ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir kynninguna. Fríverslunarsamningar skipta okkur auðvitað mjög miklu máli og í þeim er fjallað um ótal þætti. Ég vil sérstaklega draga fram þá þætti samningsins sem tilteknir eru í fríverslunarsamningum, en þar eru ákvæði, eins og segir í grein í greinargerðinni, um skuldbindingar ríkjanna til að styðja við lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi. Í þessu felst jafnframt skuldbinding ríkjanna allra til að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu í viðskiptum og fjárfestingum ríkja í millum. Þá skiptir miklu máli að tryggja gagnsæi og góða og opinbera stjórnunarhætti. Mér eru efst í huga málefni er snúa að vinnumarkaði, aðbúnaði og hollustuháttum en þar skiptir öllu máli að hagur launafólks ráði för. Það er ánægjulegt að sjá áherslur á hagkvæma auðlindanýtingu og að vinna gegn undirboðum. Ég fagna því jafnframt að fjallað sé um stöðu kvenna og eins mikilvægi kynjasjónarmiða og aðkomu að opinberri stefnumótun og þátttöku í hagkerfinu. Mikilvægi þess að virða grunnsamþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar þarf vart að ítreka hér á Íslandi þó að okkur sé ætíð hollt að rifja þær upp, en staða launafólks er víðs vegar alls ekki með sama hætti og hér og oft slæm. En ég vænti þess að við munum beita okkur eins og okkur er unnt í alþjóðlegum samskiptum og styðja við mannréttindi eins mikið og kostur er. Við þurfum að ýta undir og styðja við mannréttindi alls staðar. Ég hlakka til að kynnast enn frekar þessum málum með minni þátttöku í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA og EES.