156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

grunnskólar.

97. mál
[16:46]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar. Það er alveg rétt, ég held að það sé afar mikilvægt að við hlustum á fólkið á gólfinu og kennarana með þeirra reynslu og þekkingu. En kennarar eru einmitt að takast á við æ flóknara verkefni í dag heldur en oft áður og ekki bara í kennslu heldur líka varðandi félagslega vellíðan nemendanna og taka á sig alls kyns verkefni tengd því. Það er komið inn á einstaklingsmiðað nám í textanum og það er voðalega fallegt á að líta og heyra en ég veit að það er flóknara í að komast. Hvernig hyggst ráðherra styðja kennara og skóla og sveitarfélög í því að veita einstaklingsmiðað nám? Og þar af leiðandi líka — námsferillinn er hugsaður til þess að meta út frá einstaklingnum sjálfum og hans stöðu í kerfinu. Ég veit að þetta er flókið og þetta er kostnaðarsamt og sjálf sem fyrrum kennari þá átta ég mig á því að stundum var það bara ekki raunhæfur kostur að veita eins góða þjónustu og ég raunverulega vildi sem kennari.