grunnskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 10. þm. Reykv. s. fyrir andsvarið. Það er eins gott að við erum stödd í sal Alþingis og mér á hægri hönd situr einmitt vaktamaðurinn mikli Jón Gnarr. Þetta gerðist ekki á vakt hv. þingmanns, þetta gerðist á vakt samfélagsins, vegna þess að menntamál hafa bara ekki átt upp á pallborðið hjá samfélaginu. Það breytir því ekki að þetta frumvarp er eins og það er. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður vill segja að við öxlum ábyrgð á því að hafa verið í ríkisstjórn í mjög mörg ár, Sjálfstæðisflokkurinn. Það eru þá alla vega komnir nýir tímar. Það væri betra að svara því efnislega sem ég ræði um frekar en að vera að rifja upp fortíðina. Það er meiri bragur á því. Það er margt í þessu frumvarpi sem þarf að skoða og það þarf að vera þannig að börnin í þessu landi njóti þess. Jafnræðis er ekki gætt á meðan þetta er svona eins og frumvarpið boðar og það er bara ekki boðlegt fyrir íslenska ríkið og mennta- og barnamálaráðherra. Það þarf að vinna með námskrá sem er leiðarvísir grunnskólanna. Kennarar hafa kallað eftir (Forseti hringir.) því að hún sé löguð því að á meðan leiðarvísirinn er ekki í lagi þá verður útkoman aldrei góð.