156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:14]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Við höfum stigið framfaraskref, ansi mörg og ansi mikilvæg, í menntamálum hér á landi, þó svo að við séum hvergi nærri markmiðum okkar. En það er okkur öllum ljóst að tækniframfarir og breytt samfélag kallar líka á nýjar leiðir í menntun og nýjar nálganir en um leið líka að nýta það sem gengur vel og virkar. En með samþættingu tækni, einstaklingsmiðaðs náms og nýrra matsaðferða getum við skapað skólaumhverfi sem er bæði sveigjanlegt og öflugt.

Við í Framsóknarflokknum fögnum því að núverandi ríkisstjórn taki þetta mikilvæga mál hér upp að nýju. Af því að hv. þingmaður kom hér upp áðan og var að ræða það að ekkert hefði gengið í síðustu ríkisstjórn, og kallaði fólk til ábyrgðar, þá held ég að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur hér í þessum þingsal að hugsa til þess að það gerir enginn neitt einn í pólitík. Það tekur tíma að undirbúa mál. Við þurfum að fá samfélagið með okkur og við þurfum líka að fá hlutaðeigandi aðila að borðinu og það tekur tíma. Ástæðan fyrir því að hér er verið að leggja fram þetta tiltekna mál, sem ég fagna mikið, er einmitt vinna fyrri ríkisstjórnar. Málið var komið á þann stað að hægt er að leggja það fram í dag. Fljótt á litið, af þeim fjórum málum sem hæstv. ráðherra er að leggja fram, eru öll mál unnin af síðustu ríkisstjórn, kannski eitthvað örlítið breytt í ljósi umsagna sem er vel. En við erum öll að vinna samfélaginu í vil og það er það sem skiptir máli. Leiðin að markmiðinu getur verið ólík en ég vara þingmenn við því að við séum hér að gagnrýna allt sem fyrri stjórnvöld hafa gert en fagna því sem við sjálf gerum; við upphefjum sjálf okkur ekkert á því að gagnrýna aðra endalaust.

Mig langar samt í ljósi þessarar umræðu hér að vekja athygli á einu verkefni, mikilvægu verkefni, sem heitir Skólinn í skýjunum. Þar er tækni til að auka aðgengi að námi og efla kennslu og gera námsmat einmitt markvissara. Þar hefur verið lögð áhersla á að veita nemendum einstaklingsmiðað nám þar sem styrkleikar þeirra eru klárlega nýttir og þau fá þann stuðning sem þau þurfa. Og þetta er líka mjög mikilvægt fyrir landsbyggðirnar sem oft og tíðum hafa ekki kennara sem eru með sérþekkingu í vissum fögum og geta þá nýtt sér þetta úrræði sem er afar mikilvægt.

Í frumvarpinu er verið að tala um að auka fjölbreytni í námsmati og veita samanburðarhæfar upplýsingar og tryggja að öll börn fái viðeigandi stuðning. Við komum inn á það hér áðan varðandi einstaklingsmiðaða námið. Hæstv. ráðherra talaði um að eitt af þeim verkfærum sem við gætum notað, til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru hvað varðar einstaklingsmiðað nám, væri að fjölga kennurum. Ég held að það sé afar mikilvægt að við finnum fleiri leiðir en þá að fjölga kennurum. Við þurfum að bæta starfsaðstöðu kennara. Við þurfum að hlusta á kennara og við þurfum að styðja kennara í þeim áskorunum sem blasa við í íslensku menntakerfi. En ég velti því fyrir mér hvernig hæstv. ráðherra hefur hugsað sér þá aðkomu vegna þess að nú er slíkt verkefni, sérstaklega varðandi leik- og grunnskólana, á hendi sveitarfélaganna. Við höfum líka séð það innan OECD-landanna að við stöndum nokkuð vel hvað varðar fjölda nemenda á kennara og ég spyr hvort hún sjái fyrir sér einhverjar breytingar þess efnis.

Skólar eru eitt mikilvægasta jöfnunartækið sem við höfum hér á landi. Ég held að það sé afar mikilvægt að við reynum að gera hlutina eins vel og hægt er alls staðar. Ég veit að kennarar og starfsfólk skóla eru að leggja sig virkilega vel fram en þurfa kannski stuðning. Nú þekki ég aðeins stöðuna á Akureyri en Akureyrarbær hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á menntastefnu sína sem byggir á gæðaumbótum og hámarksstuðningi við framvindu nemandans. Það felur í sér innleiðingu stafrænna lausna og einstaklingsmiðaðra kennsluaðferða og líka markvissa þátttöku foreldra og samfélagsins í menntunarferlinu. Það er afar mikilvægt þetta samspil á milli heimila og skóla, því þéttara sem það samtal er — og nú er ég ekki að tala um þessa endurteknu föstudagspósta heldur samtal þarna á milli og virðingu á milli fjölskyldna, heimila og skóla.

Akureyrarbær hefur unnið að gæðamati í menntakerfinu til að tryggja að kennsla og starfsemi skólanna uppfylli helstu kröfur. Nú erum við með innra mat og við erum með ytra mat, og stjórnvöld hafa verið að fara í mat á skólastarfi. Ef allur hringurinn er tekinn um allt landið, þetta eru fjölmargir skólar, þá held ég að það sé á sjö ára fresti sem hægt er að fara í þetta mat og maður veltir fyrir sér hverju það skilar, hvort það sé ekki mikilvægt einmitt að efla sveitarfélögin enn frekar til þess að vera með þetta gæðamat á starfi innan síns sveitarfélags. Hvernig er námið? Hvernig er kennslan? Hvernig er stjórnunin? Hvaða árangri er viðkomandi stofnun að ná? Ég held að þetta sé rosalega mikilvægt því að með aukinni áherslu á gæðastarf og umbætur í kennsluháttum og stefnumótun getum við mögulega séð enn frekari velferð og framfarir nemandans.

Mig langaði líka, í ljósi þess að ráðherra situr hér undir þessari umræðu, og ef hæstv. ráðherra kemur upp hér á eftir, til að fá að heyra hennar viðhorf varðandi tæknilausnir eins og Skólinn í skýjunum, hvar við getum nýtt þau tækifæri enn frekar, og eins líka varðandi einstaklingsmiðað nám. Margir foreldrar eru svolítið ráðalausir. Það eru allir að reyna að gera sitt. Skólaþróunarsvið í hverju sveitarfélagi fyrir sig, skólar, kennarar, foreldrar, stundum erum við ráðþrota. En hvernig er hægt að mæta nemandanum með einstaklingsmiðuðum hætti betur en við gerum í dag. Nemandinn sjálfur á rétt á vissri þjónustu sem hann fær því miður ekki alltaf þrátt fyrir vilja allra hlutaðeigandi aðila. Eins líka varðandi þetta gæðamat, hvaða viðhorf hefur hæstv. ráðherra til þess að efla enn frekar gæðamat í skólum landsins?