grunnskólar.
Virðulegi forseti. Við erum hérna að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla frá mennta- og barnamálaráðherra. Tilefni til þessarar lagasetningar er brýn enda námsmat órjúfanlegur hluti af námi og kennslu og er mat á hæfni á framförum nemenda reglubundinn þáttur í skólastarfi. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er megintilgangur námsmats að afla upplýsinga um námslega stöðu nemenda. Með námsmati er þannig fylgst með því hvort nemendur hafi tileinkað sér þá þekkingu, leikni og hæfni sem felst í þeim hæfnisviðmiðum, námsmarkmiðum og matsviðmiðum sem unnið er að hverju sinni. Með námsmati fást upplýsingar um námslega stöðu nemenda á þeim tímapunkti sem þeirra er aflað. Við erum að tala um safn matstækja. Innleiðing á hluta er þegar hafin og heldur áfram á næsta skólaári. Þetta er safn matstækja sem að hluta eru valkvæð og að öðrum hluta skylda, sem ætlað er að gefa heildstæða mynd af stöðu og framvindu hvers barns í námi og þá skiptir öllu máli að það sé gert jafnt og þétt yfir skólagönguna. Auk nýrra samræmdra prófa mun þessi svokallaði Matsferill innihalda fjölda tækja og tóla fyrir kennara til að nota reglulega í skólastarfi til að fá tíðari og fjölbreyttari mælingar á námsárangri barna.
Það er bara komið að þessu. Nú er þetta hefjast. Það er það sem er svo dásamlegt við þetta allt saman og mér finnst að við ættum öll að vera hér bara glaðbeitt og brosandi því að í vor verða ný samræmd próf í íslensku og stærðfræði lögð fyrir um 7.000 nemendur í 26 skólum víðs vegar um landið og leitað eftir endurgjöf kennara og nemenda um inntak þeirra og framkvæmd. Næsta skólaár standa prófin öllum skólum á landinu til boða í sjö árgöngum, 4.–10. bekk, en notkun þeirra verður skyldubundin í 4., 6. og 9. bekk. Það er einmitt svo mikilvægt að byrja á þessu til að geta síðan eftir þennan tíma farið yfir þetta, hvernig þetta gekk og hverju þarf mögulega að breyta og bæta við. Öðruvísi verður ekki fundið út úr því en að prófa þetta, prufukeyra þetta, hefja keyrsluna á þessu, og það er að gerast núna.
Ráðherra fór ágætlega yfir þessi endalok gömlu samræmdu prófanna en mig langar samt aðeins að segja nokkur orð um það einnig því að í stefnumótunarvinnu sem fór fram á árunum 2018–2021 kom skýrt fram að breyta þyrfti samræmdu námsmati til að mæta betur þörfum nemenda og skólakerfisins. Í áðurnefndri skýrslu starfshópsins, Framtíðarstefna um samræmt námsmat, frá árinu 2020 var lagt til að prófin í þeirri mynd sem þau höfðu verið lögð fyrir yrðu ekki þróuð frekar og notkun þeirra hætt. Árið 2021 urðu alvarlegir hnökrar á fyrirlagningu samræmdra könnunarprófa og kom fram að stafrænt prófakerfi sem hafði verið notað við fyrirlögnina væri svo úrelt og óhentugt að það yrði ekki notað áfram. Það voru þessar aðstæður, ásamt því að heimsfaraldurinn Covid-19 kom til, sem lögðu á skólakerfið mikið álag og leiddu til þess að mennta- og barnamálaráðherra lagði til við Alþingi að afnema tímabundna skyldu til að leggja fyrir samræmd próf til og með 31. desember 2024. Þetta var virkilega umdeilt eins og við munum kannski öll. Sérstaklega eftir að PISA-niðurstöðurnar höfðu sýnt ítrekað að börnum á Íslandi hrakaði þá fóru menn að hugsa að eitthvað væri ekki að ganga upp í menntun barna. Síðan var þráttað um þetta fram og til baka, hvort það ætti að hefja aftur samræmdu prófin eins og þau voru eða hvað skyldi gera. Og það er rétt, eins og ég sagði í mínu andsvari áðan, að þessi vinna öll hófst á síðasta kjörtímabili undir stjórn barnamálaráðherra sem þá var og honum ber að þakka að hann lagði til mikla vinnu í þetta sem við erum núna að njóta góðs af.
Framhaldsskólar sögðu náttúrlega sína sögu líka og kvörtuðu sárlega yfir að eiga erfitt með að meta þekkingu og getu umsækjenda þar sem ekkert samræmt mat hefur nú legið fyrir í nokkur ár. En hvernig námsmat? Hver er munurinn á því sem við erum að fara í og því sem var? Og hvað skiptir máli í þessu sambandi? Við í Flokki fólksins höfum lengi talað fyrir mikilvægi þess að fjölþætt breiðvirkt námsmat, byggt á ólíkum mælikvörðum, þurfi að komast í gagnið hið fyrsta. Þetta erum við búin að tala um síðustu ár í borginni. Þaðan er ég að koma og auðvitað var tekist á um þessi mál þar líka. Mikilvægt er að hafa hluta matsins samræmdan, það er bara virkilega mikilvægt. Ég vil þess vegna líka taka undir margt af því sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen sagði áðan hvað varðar þennan samræmda hluta, hann er sannarlega mikilvægur og má alls ekki tala hann niður á neinn hátt.
En vandinn við eina tegund mælikvarða, eins og samræmdu prófin voru og við þurfum að gæta okkur á að lenda ekki aftur í sama vanda, er sá að börn sem standa sig vel í öðrum greinum en þeim sem samræmdu prófin mældu féllu í skuggann þar sem framhaldsskólar einblíndu mest á einkunnir samræmdu prófanna. Það var eitt stærsta vandamálið við þessi samræmdu próf þegar við höfðum ekkert annað með. Nemendur með annan menningar- og tungumálabakgrunn en íslensku sitja heldur ekki við sama borð og íslensk börn, t.d. á samræmdu íslensku prófi. Börn fátækra sitja heldur ekki við sama borð og börn efnameiri foreldra. Sem dæmi fá þau síður einkakennslu sem hjálpar þeim með undirbúning eins og efnameiri foreldrar geta mögulega veitt börnum sínum. Fjölþætt mat er það sem skiptir öllu máli og það þarf að gefa breiða mynd af getu nemenda og styrkleika þeirra því að ekkert barn er eins. Þau eru jú misjöfn eins og þau eru mörg. Börn með t.d. lestrarörðugleika eða annað móðurmál en íslensku þurfa að fá sanngjarnt mat og sömu tækifæri. Og áfram má halda; börn sem eru með sértæka námserfiðleika þurfa líka að fá sanngjarnt mat.
Þegar rætt er um skólamál og samræmt námsmat má einnig horfa á málið út frá framhaldsskólunum. Þeirra ábyrgð er líka einhver í þessu, hvernig þeir geta t.d. tekið við nemendum á grundvelli meiri jöfnuðar. Umfram allt verður að reyna að mæta óskum barna um skóla og nám. En nú fer þetta allt saman að koma í ljós. Námsmat verður að vera sett fram þannig að það veiti reglulega skýrar upplýsingar um framvindu náms og sé fjölbreytt mat á námi en einnig vellíðan og velferð barnsins. Við þurfum að taka þetta allan hringinn og horfa á alla þætti. Nú hefur verið unnið að heildarendurskoðun á samræmdu námsmati, eins og ráðherra hefur hér kynnt, með hagsmuni og þarfir nemenda að leiðarljósi og það markmið að veita skólum, nemendum og foreldrum góðar upplýsingar um stöðu nemandans. Mat á áhrifum er mikið eins og fram kemur í frumvarpinu. Í samræmi við framangreint hefur frá árinu 2022 verið unnið að nýju fyrirkomulagi samræmds mats undir yfirheitinu Matsferill. Það er akkúrat það sem er að hefjast núna og við munum sjá hvernig mun virka á næsta ári. Þetta er sem sagt komið af stað, betrumbætt og lagfært, og sett í forgang hjá þessari ríkisstjórn og verður ekki tafið lengur. Gert er ráð fyrir að ný ákvæði frumvarpsins hafi mjög mikið af jákvæðum áhrifum. Þetta er vel rakið í þessu frumvarpi. Þessi nýju matstæki munu gefa aukna möguleika á fjölbreytni og að börnum sé mætt í samræmi við þarfir þeirra. Ákvæðin munu hafa jákvæð áhrif á sveitarfélög sem munu njóta aukins stuðnings ríkisins við faglegt námsmat í grunnskólum.
Mig langar bara að lokum: Þessi mál eru mér mikilvæg og eru það mörgum hér í þessum sal einnig. Ég hef í mörg ár starfað í skólum. Ég er kennari, hef bæði kennt í grunnskólum, í framhaldsskóla og á háskólastigi, en mest um vert er að ég hef verið skólasálfræðingur í ein tíu ár og unnið þétt með sérkennurum og öðrum kennurum, þannig að ég held að ég sé alveg ágætlega vel að mér í þessum málum og viti hvað er nauðsynlegt. Eins og ég sagði áðan þá var þetta mál auðvitað allt saman mjög vel og mikið rætt í Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum landsins því að við erum jú að tala um öll börn á landinu. Það er þess vegna mikilvægt að þegar upplýsingar úr námsmati eru nýttar á markvissan hátt þá er auðvitað hægt að styrkja kennsluna og kennsluaðferðir og til að bæta sérstaklega námsárangur nemenda og efla samstarf og samskipti heimilis og skóla. Þar sem ég sé kostinn í þessu, og það stendur skýrum stöfum, er að það á að nota útkomuna úr hverju þessara matstækja strax með því að vega og meta hvort mögulega þurfi að breyta eitthvað námsefninu eða kennsluaðferðinni þannig að þetta verði almennilega gagnvirkt. Þetta er ekki bara að bíða og sjá einhverjar niðurstöður heldur að nýta niðurstöðurnar til að vega og meta hvort eitthvað þurfi mögulega að breytast hjá barninu í skólanum. Þessar upplýsingar úr námsmati verða því mikilvægar til að átta sig á stöðu bæði einstakra námshópa og skóla, jafnvel sveitarfélaga, landshluta og umfram allt barnsins sjálfs sem einstaklings.
Það sem gerir þetta frumvarp tryggt og trúverðugt er að það var unnið í miklu samstarfi við alla aðila sem það varða. Þarna er um að ræða kennara, foreldra og aðra sérfræðinga á þessu sviði þannig að ég myndi segja að þarna hafi verið gríðarlegt samstarf sem við viljum auðvitað sjá. Hér er ekkert verið að tala yfir hausamótunum á neinum heldur hefur fjöldinn allur af fagfólki, foreldrum og fleiri komi þarna að. Það er tímabært að prófa þetta. Auðvitað er það þannig þegar verið er að hefja eitthvað nýtt að þá verður rækileg endurskoðun. Eftir næsta vetur getum við aftur komið hérna og þá geta þeir þingmenn sem eru að taka til máls núna og eru með áhyggjur virkilega bent á hvað mætti betur fara. En núna þurfum við bara að byrja, það er kominn tími, enda er búinn að vera gríðarlega langur og mikill aðdragandi og að sjálfsögðu hafa mjög margir komið að þessu starfi á síðasta kjörtímabili, ég vil ekki gera lítið úr því, en mér fannst samt svolítið einkennilegt að skammast svona yfir þessu núna þegar við erum að hefja leikinn. Við erum bara búin að vera hérna saman, þessi hópur, í tvær vikur. Það er náttúrlega ekki hægt að bíða endalaust af ótta við að eitthvað sé ekki alveg nógu gott. Það er aldrei neitt fullkomið þegar maður er að prófa eitthvað nýtt og flókið og sérstaklega þegar við erum að tala um börnin okkar sem við viljum nú aldeilis ekki vera eitthvað að leika okkur með. Við viljum vanda okkur. Hér er verið að byggja á góðum grunni og ég er búin að hrósa þeim sem áttu mestan þátt í því, ég er búin að hrósa þeim aðila margsinnis hér, því að ég vil gjarnan halda til haga öllu því sem vel er gert. Það er sama hvaðan gott kemur í mínum huga og algjörlega sama frá hvaða flokki og frá hvaða einstaklingum. Það skiptir ekki máli. Við erum öll að þessu saman. Þannig að ég kalla bara eftir bjartsýni og jákvæðri umræðu og ekki byrja bara strax að rífa niður og tæta með alls konar tínslu á einhverju sem gæti mögulega verið vandamál.