156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:41]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, takk kærlega fyrir þessa ábendingu. Sennilega, það getur verið. Við getum séð það á upptöku ef ég hef sagt „að aðlaga námsmatið“. Ég hef hreinlega bara mismælt mig. Að sjálfsögðu erum við ekki að fara að aðlaga námsmatið. Það er bara mismæli. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa bent á það en það er ekki það sem við erum að tala um hérna. Námsmatið er eins og það er. Ég hef sennilega ætlað að segja námsefnið. Ég biðst velvirðingar.

En varðandi árangursmat, ég vil bara þakka fyrir spurninguna. Það er ánægjulegt að hv. þm. Vilhjálmur Árnason skyldi hafa spurt um þetta því að ég er mikill talsmaður þess að árangursmeta. Þetta er eiginlega það sem ég er búin að vera að tala um þarna hinum megin við götuna, afsakið að ég sé að vísa í það. Ég hef nefnilega viljað árangursmeta bara svo margt, t.d. bara sérkennsluaðferðirnar, auðvitað lestraraðferðirnar og í rauninni skiptir öllu máli fyrir mér að í gangi sé gott árangursmat með svo fjölmargt innan skólanna því að að öðrum kosti fáum við náttúrlega aldrei að vita almennilega hvaða árangri við erum að ná. En ég er ekki að segja að það sé hægt að blanda því saman akkúrat við þetta núna, þetta er bara dálítið sérmál og eitthvað sem þarf virkilega að kortleggja og skoða í samráði við sveitarfélögin. Þarna sé ég fyrir mér frábært tækifæri fyrir ríki og sveitarfélög að eiga betra samtal og skoða líka hvað er til. Það er búið að vera að laga þessa hluti, eitthvað alla vega í sveitarfélaginu Reykjavík en ég veit ekki um önnur sveitarfélög. En þarna er virkilega óplægður akur.