156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:51]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Það er okkar sameiginlega markmið að tryggja öllum börnum í landinu menntun sem mætir þeirra þörfum, styður þau í námi og eflir þau sem einstaklinga. Við ræðum hér í dag um breytingar á námsmati í grunnskólum, breytingar sem snúast ekki aðeins um nýtt verklag, nýtt fyrirkomulag heldur um grundvallarbreytingu á því hvernig við skiljum hlutverk samræmds námsmats í grunnskólastarfi. Námsmat er ekki bara mælitæki. Það er lykilþáttur í því að stuðla að því að öll börn fái kennslu og stuðning við hæfi. Skilvirkt námsmat þjónar nefnilega tvenns konar megintilgangi:

1. Það veitir innsýn í námsstöðu nemenda, hjálpar kennurum að laga kennslu að þörfum hvers barns og styður skólastjórnendur í því að bæta skólastarf.

2. Það skapar yfirsýn yfir skólastarfið í heild þannig að við sem samfélag getum fylgst með þróun menntakerfisins og gripið tímanlega inn í ef þörf krefur.

Hingað til hefur samræmt námsmat í grunnskólum ekki alltaf þjónað þessum markmiðum nægilega vel. Sérstaklega var gamla fyrirkomulagið með umfangsmiklum samræmdum könnunarprófum sem lögð voru fyrir með löngu millibili ekki nægilega gagnleg fyrir kennara og nemendur til að bæta árangur og bregðast við námsþörfum nemenda á réttum tíma. Í stað þess að vera lifandi tæki til að styðja við nám og kennslu voru gömlu samræmdu prófin fyrst og fremst lokamat sem nýttist ekki sem raunveruleg leiðsögn um hvernig mætti bæta nám einstakra nemenda í grunnskólunum. Það sagði foreldrum og kennurum lítið annað en hvernig barnið stóð sig á tilteknum degi undir miklu álagi. Við þurfum annað. Við þurfum betra námsmat, námsmat sem virkar eins og spegill fyrir kennara og nemendur í stað þess að vera aðeins eftiráúttekt á árangri, námsmat sem veitir kennurum og nemendum leiðsögn um hvað má gera betur í gegnum námsferil nemenda.

Matsferillinn sem hér er verið að leggja til er nýtt námsmatskerfi í þágu nemenda, kennara og samfélags. Frá árinu 2022 hefur verið unnið að nýju námsmatskerfi, matsferli, í samstarfi mennta- og barnamálaráðuneytisins og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Matsferill byggir á rannsóknum, víðtæku samráði við hagaðila og er hluti af menntastefnu Íslands til 2030. Í stað þess að reiða sig á taugatrekkjandi samræmd próf með löngu millibili inniheldur matsferill reglulegt samræmt námsmat yfir skólagönguna auk fjölbreyttra matstækja í mismunandi grein.

Innleiðing matsferils hefur þríþætt áhrif á nám og kennslu.

1. Stuðningur við einstaklingsmiðað nám. Með reglulegum mælingum á stöðu nemenda fá kennarar og foreldrar rauntímaupplýsingar um framvindu nemenda og framvindu námsins. Það þýðir að hægt verður að aðlaga kennslu að styrkleikum og áskorunum hvers barns, hvort sem það kallar á frekari stuðning eða meira krefjandi verkefni.

2. Réttur stuðningur á réttum tíma. Með því að fylgjast með framförum barna frá upphafi skólagöngu er hægt að grípa inn í snemma áður en vandamálin safnast upp. Ef barn á erfitt með starfssvæði í 4. bekk t.d. er hægt að bregðast við strax og kanna reglulega hvort viðeigandi árangri sé náð.

3. Minna álag og fjölbreyttara námsmat. Í stað þess að hafa einn sameiginlegan prófdag með tilheyrandi álagi á nemendur og skóla verður fyrirlögn matsferilsins sveigjanlegri og tekur tillit til kennslufyrirkomulags hvers skóla.

En hvað felur frumvarpið í sér? Til þess að tryggja innleiðingu matsferils og styrkja hlutverk samræmds námsmats í íslenskum grunnskólum eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um grunnskóla. Samræmt námsmat verður í boði í íslensku og stærðfræði í hverjum árgangi í 4.–10. bekk. Fyrirlögn verði skyldubundin og lögfest í 4., 6. og 9. bekk. Þetta veitir samanburðarhæfar upplýsingar um námsstöðu nemenda yfir lengri tíma og tryggir að við höfum aðgengi að rauntímagögnum um stöðu skólakerfisins í heild. Skólar fá ný matstæki og skimunarpróf sem kennarar geta notað til að styðja við einstaklingsbundið nám nemenda og greina þörf fyrir aukinn stuðning eða auknar áskoranir í náminu. Ráðherra verður skylt að birta reglulega ópersónugreinanleg gögn um stöðu skólastarfs sem tryggir gagnsæi og sameiginlegan skilning á stöðu menntakerfisins. Þetta er lykilatriði.

Það er eðlilegt að breytingar sem þessar kalli á umræðu og hefur t.d. Viðskiptaráð Íslands gagnrýnt að samræmd próf hafi verið afnumin og telur að þau hafi verið nauðsynleg til að tryggja gæði menntunar og jafnræði milli nemenda þegar kemur að lokaeinkunnum grunnskóla. Ég skil þessi sjónarmið og ég er sammála því að við þurfum samanburðarhæfar upplýsingar um stöðu nemenda og skólakerfisins en á sama tíma er ljóst að gömlu samræmdu prófin skiluðu ekki upplýsingum um nám og kennslu svo mælingarnar dygðu til að stuðla að raunverulegum umbótum á skólakerfinu. Samræmdu prófin gáfu einungis takmarkaða sýn á heildarstöðu nemenda út frá öllum þeim hæfniviðmiðum sem eru undir í aðalnámskrá grunnskóla og voru þar með heldur ekki fullnægjandi mælitæki sem lokaeinkunn úr grunnskóla.

Markmiðið með nýju fyrirkomulagi er að tryggja bæði samanburðarhæfar upplýsingar og einstaklingsmiðað námsmat sem nýtist kennurum og nemendum til stöðugra umbóta og framfara á meðan á skólagöngu stendur.

Virðulegi forseti. Það er okkar skylda að bregðast við ákalli skólasamfélagsins eftir námsmatskerfi sem þjónar nemendunum okkar, styður kennara í starfi og gefur skólakerfinu þau gögn sem þarf til að bæta menntun í landinu. Matsferill er lifandi og raunverulegt námsmat sem er ekki aðeins gagnlegt fyrir kerfið heldur ekki síst fyrir börnin sjálf. Þetta frumvarp tryggir að við höfum námsmat sem nýtist til leiðsagnar, aðlögunar og umbóta. Það veitir kennurum verkfæri til að aðlaga kennslu, gefur nemendum upplýsingar um eigin stöðu og foreldrum skýra mynd af framförum barna sinna.

Ég hvet hv. þingmenn til að styðja þetta frumvarp og vinna saman að því að skapa sterkara, sanngjarnara og árangursríkara námsmatskerfi í íslenskum grunnskólum.