156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

einkaleyfi.

102. mál
[19:26]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og óska honum til hamingju með sitt fyrsta spennandi innleiðingarmál hér. Ég get alveg tekið undir að það er margt sem við þurfum að ræða og þó að menntamálin séu mjög mikilvæg þá er EES-samningurinn það vissulega. Þá ætla ég bara að endurtaka það sem ég sagði hér fyrir helgi, ég ætla að hvetja ríkisstjórnina og ráðherrana alla til að standa vörð um EES-samninginn og vona að eitthvert Brussel-brölt um mögulega inngöngu í Evrópusambandið hafi ekki áhrif á þá hagsmunagæslu.

Hæstv. ráðherra. Ég held að það sé ekki mjög vel falið leyndarmál að hér á Íslandi hafa orðið til ofboðslega öflug samheitalyfjafyrirtæki, m.a. vegna þess að hér hafa þau getað hafið þróun á lyfjum sem þó eru enn þá undir einkaleyfi, og þá yfirleitt bara þannig að þessir aðilar hafa ekki verið að sækja um einkaleyfi á litla Íslandi af því að við höfum ekki verið að fullu undir þessu merki. Þannig að ég spyr bara hér: Þegar verið að tala um mat á áhrifum, sjáum við ekki fram á að þetta muni hafa bein áhrif á þau samheitalyfjafyrirtæki sem eru hér í dag og liggur þá fyrir hvers eðlis það er í útflutningstekjum eða, hvað eigum við að segja, hagkvæmni, arðgreiðslum og slíku frá þessum fyrirtækjum?