156. löggjafarþing — 6. fundur,  17. feb. 2025.

viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi.

103. mál
[19:33]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Herra forseti. Þetta er annað svipað mál, um annað atriði þó. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010, um svokallaða meðalhófsprófun, EES-reglur. Þetta frumvarp hefur áður verið lagt fram og það var meira að segja mælt fyrir því en það fékk ekki samþykki. Það hefur hins vegar dómur fallið á íslenska ríkið fyrir að hafa ekki innleitt þetta.

Markmiðið með þessu frumvarpi sem ég mæli fyrir nú er að tryggja að framkvæmt sé mat á meðalhófi, svokölluð meðalhófsprófun, áður en innleidd er ný lögverndun starfsgreina eða gildandi lögverndun breytt. Það er gert til þess að tryggja eðlilega starfsemi inn á innri markað EES-svæðisins sem gengur auðvitað út á einsleitni og hnökralítið eða -laust samstarf á milli svæða innan þess.

Áður en ég fjalla um efni frumvarpsins sjálfs vil ég minnast á efni laganna sem er verið að breyta, þ.e. laga nr. 26/2010. Þau voru upphaflega sett til að innleiða tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi. Sú tilskipun sameinaði fyrri tilskipanir um sama efni og var ætlað að einfalda viðurkenningu á menntun og hæfi til starfa fyrir einstaklinga sem sækjast eftir því að starfa í öðru EES-landi.

Með því frumvarpi sem er til umfjöllunar núna er lagt til að innleidd verði í íslenskan rétt efnisákvæði tilskipunar (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina. Sú tilskipun var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar árið 2021 og fékk númerið 243 þann 24. september 2021. Tilskipunin um meðalhófsprófun tekur til þeirra lögvernduðu starfsgreina sem falla undir gildissvið laga nr. 26/2010 og því var efnisákvæðum tilskipunarinnar um meðalhófsprófun fundinn staður þar.

Frumvarpið felur ekki í sér efnislegar breytingar á gildandi ákvæðum laga nr. 26/2010, heldur einvörðungu þau nýmæli að stjórnvöld skuli framkvæma meðalhófsprófun þegar um er að ræða ákvæði laga eða stjórnvaldsfyrirmæli sem takmarka aðgang að lögverndaðri starfsgrein. Það er því ekki verið að breyta reglum um hvernig viðurkenningu á menntun og hæfi er háttað heldur er þetta eingöngu skylda sem snýr að stjórnvöldum til að rökstyðja breytingar á lögverndun með vísan til almannahagsmuna og að meðalhófs sé gætt.

Helstu nýmæli frumvarpsins eru að stjórnvöld skulu framkvæma meðalhófsprófun þegar ákvæðum laga eða stjórnvaldsfyrirmæla sem takmarka aðgang að lögverndaðri starfsgrein eða iðkun hennar er breytt eða ný ákvæði eru sett. Í fyrsta lagi skulu slík ákvæði rökstudd með vísan til almannahagsmuna og í öðru lagi skulu ákvæðin vera til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt er að og ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði. Umfang matsins er í réttu hlutfalli við eðli, innihald og umfang ákvæðisins. Þetta verklag á að leiða til vandaðri reglusetningar um lögverndun starfa þar sem ekki er gengið lengra í að lögvernda starfsgreinar en þörf er á með tilliti til almannahagsmuna. Þetta styður þannig ágætlega við lið 10 í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um fjölbreytni í atvinnulífi og hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja með því að tryggja að takmarkanir á aðgengi að starfsgreinum séu vel ígrundaðar og rökstuddar.

Framkvæmd meðalhófsprófana er á ábyrgð hlutaðeigandi ráðherra hverju sinni. Í þeim tilfellum þar sem ráðherra setur fram nýjar eða breyttar reglur um lögverndun þarf að skrá rökstuðning fyrir því í gagnagrunn ESB yfir lögverndaðar starfsgreinar þar sem fram kemur að reglurnar hafi verið metnar í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar, þær séu rökstuddar sem réttlætanlegar og að meðalhófs hafi verið gætt.

Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um heimild ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla til að setja reglugerð um slíka meðalhófsprófun, upplýsingaskipti milli aðildarríkja, kröfur um skráningu í gagnagrunn og önnur framkvæmdaratriði tilskipunarinnar um meðalhófsprófun.

Virðulegur forseti. Í frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarksákvæði tilskipunar ESB um meðalhófsprófun kveða á um, þ.e. engin gullhúðun frekar en í fyrra málinu. Frumvarpið felur einungis í sér ákvæði til innleiðingar á tilskipuninni. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs. Frumvarpið eykur ekki reglubyrði á fyrirtæki eða einstaklinga og getur þvert á móti haft jákvæð áhrif á atvinnufrelsi og samkeppnishæfni. Þá er talið að frumvarpið hafi hlutlaus eða jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna.

Virðulegur forseti. Nú þegar ég hef gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum þá legg ég til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu.