156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

Strandveiðar og tekjur hins opinbera af sjávarútvegi.

[14:15]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þessa mikilvægu umræðu sem hann býður upp á. Of lítið er gert af því í þessum sal að ræða efnahagslegar undirstöður þjóðarinnar og það er tvímælalaust full ástæða til.

Varðandi þær ágætu spurningar sem hv. þingmaður ber fram, ef við byrjum á þeirri fyrstu sem snýr að því hvort gerð hafi verið úttekt sem staðfestir að markmiðin með veiðunum sé náð, vil ég bjóða eftirfarandi svar: Strandveiðar voru heimilaðar með lögum nr. 66, 19. júní 2009, með breytingum á lögum 111/2006, um stjórn fiskveiða, og hófust þann 28. júní 2009. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Með frjálsum handfæraveiðum, eða strandveiðum, yfir sumarmánuðina er opnað fyrir handfæraveiðar allra þeirra báta sem uppfylla þau skilyrði sem gerð eru til fiskiskipa sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni. Með veiðunum er þannig m.a. opnað fyrir takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki eru handhafar aflamarks eða krókaaflamarks. Núverandi handhöfum aflamarks eða krókaaflamarks stendur þó jafnframt til boða að stunda frjálsar handfæraveiðar að sömu skilyrðum uppfylltum. Þannig er sveigjanleikinn aukinn og möguleikar nýrra aðila til að stunda veiðar í atvinnuskyni auknir.“

Af framansögðu má ráða að þótt markmið strandveiða hafi ekki verið lögfest er markmiðunum til að dreifa í ýmsum lögskýringargögnum sem sýna að markmið strandveiða eru af félagslegum toga. Markmið sem nefnd hafa verið eru m.a. að styrkja byggð og örva atvinnu í sjávarbyggðum landsins, að greiða fyrir nýliðun í sjávarútvegi og opna fyrir takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki eru handhafar aflamarks eða krókaaflamarks, að gefa núverandi handhöfum aflamarks eða krókaaflamarks möguleika á að stunda frjálsar handfæraveiðar að uppfylltum skilyrðum.

Nokkrar skýrslur hafa verið gerðar um áhrif strandveiða með tilliti til eftirfarandi. Fyrst er að nefna úttekt Háskólaseturs Vestfjarða frá árinu 2010 á framgangi og áhrifum strandveiða sumarið 2009. Meðal niðurstaðna úttektarinnar var að 80% strandveiðimanna hefðu gert bát út á fiskveiðar áður og yfir helmingur útgerðaraðila hafði að baki sögu í kvótakerfinu, en 80% af þeim áttu kvóta á sama tíma og þeir stunduðu strandveiðarnar.

Í annan stað er skýrsla Háskólans á Akureyri frá 2017 um þróun strandveiða á tímabilinu 2009–2017 og framgang veiðanna árið 2017. Meðal niðurstaðna skýrslunnar er að strandveiðikerfið hefði ekki verið brú fyrir nýliðun inn í aflamarkskerfið eins og vonast hafði verið til, en aðeins 10% strandveiðimanna höfðu verið viðloðandi útgerð áður. Þá segir að fiskverð hafi haft tilhneigingu til að lækka á meðan strandveiðin stendur yfir en hvetji báta í krókaaflamarki til að bíða í höfn meðan veiðarnar ganga yfir.

Nýjasta úttektin er í skýrslunni Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur frá 2023, sem unnin var fyrir matvælaráðuneytið, og þar er m.a. fjallað um áhrif strandveiða. Í skýrslunni kemur m.a. fram að í könnun á viðhorfi Íslendinga til sjávarútvegs segi 72% aðspurðra að hlutfall strandveiða af heildarafla ætti að vera hærra. Könnunin leiðir enn fremur í ljós að Íslendingar vilji almennt að gætt sé jafnræðis á milli sjónarmiða um hagræði og byggðasjónarmiða. Skýrslan leiðir í ljós að um 40% strandveiðimanna eru yfir sextugu og miðgildi aldurs skipstjóra sé 57 ár.

Rætt hefur verið um ýmsa aðra hluti er tengjast strandveiðunum, m.a. hvað varðar byggðafestu og ég mun víkja hér að á eftir.

Varðandi spurningu tvö, könnun um viðhorf Íslendinga til sjávarútvegs … (Forseti hringir.) — Já, nú hafði ráðherra reiknað með að fá rýmri tíma en mun koma upp aftur og halda áfram umræðunni.

(Forseti (ÞSv): Það skal upplýst að málshefjandi og hæstv. ráðherra hafa fimm mínútur hvor í fyrri umferð og tvær í þeirri seinni.)