156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

Strandveiðar og tekjur hins opinbera af sjávarútvegi.

[14:28]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Strandveiðarnar hafa sýnt það og sannað að þær eru þjóðhagslega hagkvæmar og hafa komið með mikla innspýtingu inn í sjávarbyggðirnar, þær sjávarbyggðir sérstaklega sem misst hafa miklar aflaheimildir vegna samþjöppunar hjá stórútgerðinni í gegnum tíðina. Árið 2019 óskaði ég eftir því fyrir hönd atvinnuveganefndar að það yrði gerð skýrsla af hálfu Byggðastofnunar um áhrif strandveiða 2018 og 2019 en þá var komið á þessu 48 daga kerfi. Þar kom fram að veiðarnar höfðu mikil jákvæð áhrif fyrir sjávarbyggðirnar og stærstur hluti svarenda taldi að strandveiðarnar hefðu verið fjárhagslega mjög mikilvægar fyrir afkomu fjölskyldunnar. Verðmæti strandveiða á síðasta ári var um 5 milljarðar. Það fylgja mikil umsvif í höfnum landsins þegar strandveiðitímabilið gengur yfir. Heimamenn jafnt sem aðkomumenn fá að róa til fiskjar án þess að greiða stórútgerðinni háar fjárhæðir fyrir kvóta. Það skapast fjöldi starfa, afleiddra starfa í kringum strandveiðarnar, verslanir, þjónusta, iðnaðarmenn, vélaverkstæði o.s.frv. og allt samfélagið nýtur góðs af smábátaútgerð. Það er mikil eftirspurn eftir nýveiddum afla strandveiðibátanna og þetta eru umhverfisvænar veiðar sem raska ekki lífríki sjávarins eins og botndræg þung veiðarfæri gera. Strandveiðar gefa eldri sjómönnum tækifæri til að stunda útgerð á eigin bátum eftir kannski langa starfsævi á stærri skipum og þær veita ungu fólki tækifæri til að kynna sér sjómennsku. Strandveiðar eru hluti af menningu þjóðarinnar, strandveiðimenningu þjóðarinnar sem á að efla. Það á að leyfa þessari ábyrgu og sjálfbæru atvinnugrein að blómstra og festast í sessi til heilla fyrir land og þjóð og kannanir sýna að yfir 72% þjóðarinnar vilja efla strandveiðar. Þeir hér í salnum sem vilja styðja einstaklingsframtakið, (Forseti hringir.) sem ég held að séu nokkuð margir, ættu nú að gera það og efla strandveiðar því að það er einstaklingsframtakið sem blómstrar í sjávarbyggðum landsins.