Alþjóðaþingmannasambandið 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek kærlega fyrir góða spurningu. Í svona framsögu er kannski ekki hægt að taka allt fram. Það sem kom ekki fram í máli mínu hér áðan er að samstarf Norðurlandanna er vissulega mjög formfast en í öllum formlegheitum þess samstarfs pössum við upp á að halda sameiginlega fundi eða formannafundi fyrir hvert þing o.s.frv. Þannig að það samstarf er algerlega fest í sessi. Hins vegar er á þingunum sjálfum breiðari hópur, við getum kannski sagt hinna vestrænu gilda, sem heldur sig saman og talar sig saman um ákveðnar ályktanir o.s.frv. Það samstarf er ekki jafn formfast en það er samt við lýði, þó aðeins óformlegra sé, á milli þinganna. Hvort það hefur verið rætt að gera það með formlegri hætti veit ég hreinlega ekki. Það hefur ekki verið rætt í mín eyru, svo að ég viti alla vega, en hvort það hefur verið rætt á öðrum vettvangi, það veit ég ekki.
Ég vil bara að lokum segja að þau okkar sem hafa upplifað að sitja í sal þar sem verið er að ræða ákveðnar ályktanir, þar sem fulltrúar allra þessara þjóðþinga sitja, og hafa upplifað að við og Norðurlöndin og jafnvel þessi ríki vestrænna gilda erum í minni hluta — þannig að ég myndi halda að í ljósi þess sé allt samstarf okkar á milli, með okkar gildi að leiðarljósi fyrir samfélag heimsins, mjög af hinu góða.