156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

ÖSE-þingið 2024.

92. mál
[15:19]
Horfa

Frsm. ÍÖSE (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa spurningu. Henni get ég ekki svarað fyllilega þar sem ég er bara nýkjörinn formaður Íslandsdeildarinnar og er að fara á minn fyrsta fund. Ég geri nú ráð fyrir því að umræða um slík mál fari fram á vinnufundum þar sem þessi mál eru rædd. Vonandi kem ég bara fullnestuð heim og ég tek áherslur hv. þingmanns með mér á fundinn á morgun.