156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

ÖSE-þingið 2024.

92. mál
[15:19]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Mig langaði aðeins að koma inn í þessa umræðu um skýrslu Íslandsdeildar ÖSE 2024. Ég er hluti Íslandsdeildarinnar eins og sakir standa en var það ekki á starfstíma þessarar skýrslu. Ég var hins vegar hluti af Íslandsdeild ÖSE 2016 og 2017 og mig langar að deila þeirri reynslu með þingheimi. Þar sótti ég vetrarfund þingsins í Vínarborg. Íslandsdeildin er einmitt, eins og áður sagði, á leið á sambærilegan fund í næstu viku en hann er einnig haldinn í Vínarborg eins og allir vetrarfundir ÖSE-þingsins.

Ég sótti einnig einn samráðsfund NB8-ríkjanna sem var þá í Kaupmannahöfn. Ég sótti hann fyrir hönd Íslandsdeildarinnar en sá hópur samanstendur af Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum og er orðinn einn okkar allra mikilvægasti bandalagshópur. Þar eru ríki sem deila mörgum gildum og einkennum. Þátttaka Eystrasaltsríkjanna og reynsluheimur þeirra er okkur ómetanlegur og ómetanlegt að hafa þar hóp smærri ríkja sem hafa kynnst og síðan verið hluti af alræðiskerfi Sovétríkjanna. Sú innsýn sem í því felst og sú innsýn sem við fáum á öryggismál og málefni Eystrasaltsins í gegnum það er okkur mikils virði. Síðan, eins og ég sagði, þá deilum við auðvitað ákveðnum gildum varðandi það hvernig við viljum sjá samfélög okkar byggjast upp.

Pólitísk vigt þessa hóps hefur verið að aukast vegna norðurslóða, vegna Eystrasaltsins og vegna þess að nú er hópurinn allur kominn inn í NATO. Ég er reyndar sannfærður um að ef hann væri allur í Evrópusambandinu þá yrði hann líka sterkur þar og vægi hans yrði langt umfram þær 32 milljónir sem innan þessara ríkja búa. Við höfum ræktað þetta samband mjög vel og það er reyndar eftir því tekið að Pólland hefur líka verið að færast nær þessum hópi í tíð núverandi stjórnvalda en fyrsta ferð og heimsókn Donalds Tusks, forsætisráðherra Póllands, til útlanda var einmitt til Svíþjóðar. Svíþjóð var á þeim tíma formennskuríki Evrópusambandsins en það er engu að síður táknrænt að sem forsætisráðherra skildi hann velja það sem áfangastað í fyrstu ferð sinni til útlanda.

Sumarið 2017 sat ég aðalfund ÖSE-þingsins sem var haldinn í Minsk í Belarús. Það var upplifun og það kennir manni líka stundum að maður veit aldrei nákvæmlega á hvaða stað maður er staddur í sögunni. Í baksýnisspeglinum er stundum allt skýrt. Þarna vissi maður að maður væri að fara inn í ríki sem væri stjórnað harðri hendi en í ljósi sögunnar vorum við kannski að heimsækja Belarús á tímum töluverðrar þíðu og ef maður gæti smellt fingrum og farið til baka til þeirra tíma sem voru þarna 2017 þá myndi maður þiggja þær breytingar til baka. Sú staðreynd að þessi fundur var haldinn var auðvitað ákveðinn vitnisburður um að stjórnvöld vildu bæta ímynd sína á alþjóðavettvangi. Það var merkilegt að þarna í þessu landi, og maður fann svolítið til ábyrgðar, væri skyndilega hægt að takast á um einhverjar ályktanir og greiða atkvæði í kosningum á einhverju þingi þar sem ekki var vitað fyrir fram hvernig niðurstöðurnar yrðu. Gagnrýni fékk að heyrast. Heimamenn Belarús lögðu t.d. fram tillögu um að berjast af hörku gegn öllum tegundum nýrra vímuefna og sá sem hér stendur talaði gegn þeirri tillögu, heimamönnum til takmarkaðrar ánægju. Engu að síður var þó hægt að halda uppi einhverri gagnrýnni umræðu þarna í Minsk í Belarús.

Sænska sendinefndin skipulagði fund með stjórnarandstæðingum. Sá fundur var haldinn á þingstaðnum í mjög fallegu herbergi sem gestgjafarnir útveguðu sænsku sendinefndinni en vissulega ekki því stærsta. Af umhyggju fyrir þægindum fundargesta var það þannig að um leið og sætin fylltust þá var ekki hægt að hleypa fleirum inn á þann fund. Þarna hittum við þó stjórnarandstæðinga í Belarús og m.a. þingkonu stjórnarandstöðunnar sem náði kjöri á þing í Belarús á þessum tíma og var ekki stuðningsmaður stjórnvalda. Hún hafði náð kjöri í kjördæmi þar sem margir af stuðningsmönnum forsetans höfðu dregið sig til baka skömmu áður en kosningin fór fram. Þetta var mögulega líka hluti af vinnu þáverandi og núverandi forseta við að skapa sér velvild meðal vestrænna ríkja.

Upplifunin af Minsk var að mörgu leyti ágæt. Þarna var ódýr og góður matur, umhverfið nokkuð öruggt, fólkið vingjarnlegt og menntastigið mjög gott. Á þessum tíma á þessum stað var orðið heilmikið um það að erlend hugbúnaðarfyrirtæki væru komin með stór hugbúnaðarhús sem störfuðu frá Belarús. Þessi andi hafði áhrif til ákveðinnar þíðu og frjálslyndisbylgju sem birtist í næstu forsetakosningum árið 2020. Andstaðan við sitjandi stjórnvöld hafði aldrei komið eins berlega í ljós eins og þarna þegar Svetlana Tsíkhanovskaja — þótt hún hafi einungis fengið 10% atkvæða samkvæmt opinberum tölum þá voru fáir hlutlausir aðilar sem trúðu þeim. Því miður tókst Alexander Lúkasjenkó að halda völdum þarna með aðstoð erlendis frá og hann hefur síðan hert tökin margfalt. Í raun voru síðustu kosningar sem þar voru núna í janúar, af því að það fóru fram forsetakosningar í janúar 2025 í Belarús, um margan hátt sögulegar en því miður á miður góðan hátt. Í öllum kosningum fram að þessu hafði Lúkasjenkó náð kjöri og oft með miklum yfirburðum. En það voru þá engu að síður frambjóðendur stjórnarandstöðunnar sem voru í kjöri. Það fór fram kosningabarátta, frambjóðendur héldu fundi, þeir kynntu sig, það fór fram einhvers konar umræða. Það varð til einhvers konar augnablik sem hægt var að nota til ákveðinnar umræðu um framtíð landsins, ákveðin umgjörð og ásýnd var til staðar, að það væri rými fyrir ákveðna gagnrýni. Því miður var því ekki til að dreifa nú í janúar. Það getur verið ákveðin áminning um það hvernig molnað getur undan lýðræðinu. Fyrst molnar oft undan fjölmiðlaumhverfinu og svona ytri þáttum. Síðan eru stofnanir lýðræðisins veiktar og gerðar háðar sitjandi stjórnvöldum. Síðan er fiktað í úrslitunum sjálfum og í þessu tilfelli þá var ákveðið að taka kosningabaráttuna sjálfa úr umferð í lokin. Og að lokum þá kannski spyr einhver sig: Til hvers að hafa kosningar yfirhöfuð ef þær eru einungis formsatriði? Og þá verður þeim sjálfum slaufað líka.

Það er stundum þannig að það er ekki endanlega ljóst hvenær lýðveldi líður undir lok. Það er ekki endilega hægt að velja eina dagsetningu þegar rómverska lýðveldið leið undir lok. Margar af þeim stofnunum sem það hafði lifðu áfram í einhver ár og áratugi löngu eftir að upphaflegur tilgangur þeirra, sem var lýðræði og valddreifing, hætti eiga við og keisaraveldið tók við. Og vel að merkja, í sambandi við boðskap belarússneskra stjórnvalda og af myndum sem birtast í ríkisfjölmiðlum þá er ljóst að það er verið að máta einn son Lúkasjenkós sem mögulegan arftaka í ríkinu.

Eitt hlutverk ÖSE er og hefur verið kosningaeftirlit. Mér er minnisstætt að á ÖSE-þingi 2017 var rædd tillaga eins fulltrúa í sænsku sendinefndinni um að þróa aðferðir til að búa til kosningaeftirlit með rafrænum kosningum og eins og ég sagði þá kom þessi tillaga einnig frá sænsku sendinefndinni og var studd af mörgum okkar sem sátu í NB8-hópnum. Hún mætti töluverðri andstöðu meðal rússnesku sendinefndarinnar og formaður hennar sagði — og ég svona enduróma það einhvern veginn þannig að rafrænar kosningar væru á margan hátt miklu betri af því að einu sinni hefðum við verið með allt á pappír og þá hefði verið fullt af kærum og þetta bara gengið mjög illa og síðan hefðum við tekið upp rafrænar kosningar og síðan þá hefði allt verið miklu betra. Það væru engar kærur, ekkert vesen með talningu og úrslitin lægju strax fyrir. Og þetta var að þeirra mati miklu betri aðferð.

Ég skal segja í því ljósi, þó að auðvitað sé hægt að gera þetta með mismunandi hætti og gera það vel, að ég er efins um að það eigi að stíga það skref að láta almennar kosningar fara fram rafrænt á þann hátt að athöfnin og talningin sé rafræn að fullu. Það er vissulega hægt að falsa kosningar og það hefur verið gert oft og ítrekað þótt um pappírskosningar sé að ræða en víðtæk fölsun á pappírskosningum kallar einfaldlega á víðtækara samsæri heldur en að það séu einhverjir aðilar sem hafa aðgang að admin-kerfi sem geta einfaldlega látið þær niðurstöður koma sem þeim sýnist.

Forseti. Ég hef nú reifað mína reynslu af ÖSE-þingi og ég hlakka til samstarfs við Íslandsdeild með hv. þingmönnum Örnu Láru Jónsdóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem voru kosin í nefndina með mér.

Forseti. Ég hef lokið máli mínu.