156. löggjafarþing — 7. fundur,  18. feb. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

44. mál
[15:57]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér enn og aftur fyrir þessu mikilvæga og góða máli. Þetta er nú bara í sjöunda skipti sem það er lagt fram hér á Alþingi. Ég vona að það dragi ekki kraftinn úr nýjum þingmönnum en það er víst þannig að við óbreyttir þingmenn þurfum oft að leggja málin fram ansi oft til að koma þeim á framfæri og ýta við fólki.

Virðulegur forseti. Ég er hér að leggja til breytingu á lögum nr. 36/1993. Þetta eru lög sem eiga við um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslur. Meðflutningsmenn á þessu frumvarpi eru hv. þingmenn Hildur Sverrisdóttir, Vilhjálmur Árnason, Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmar Guðmundsson. Ég tel að sú breyting sem hér er lögð fram sé í fyrsta lagi mjög einföld og einnig nauðsynleg. Hún gerir bara ráð fyrir því að það sé aukið frelsi um það hvernig við meðhöndlum líkamsleifar fólks. Í núverandi lögum er töluverð opinber íhlutun, er óhætt að segja, þegar kemur að jarðneskum leifum fólks. Ég hef spurt mig: Af hverju er það? Af hverju þarf hið opinbera að setja svo strangar og miklar reglur um það? Nú get ég vel skilið, þegar að því kemur að grafa líkkistuna, að við viljum hafa það á ákveðnum stöðum og þess vegna eru kirkjugarðar til. En fleiri og fleiri eru farnir að velja þá leið að láta brenna sig og nú er svo komið að yfir 50% af jarðsetningum hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur eru duftker. Það fjölgar mjög í þeim hópi sem velja það að láta brenna sig í stað þess að grafa. En það er auðvitað þannig að langoftast, og það er það sem lögin ætlast til, er askan grafin. Það er hægt að gera það í hefðbundnum kirkjugörðum. Ég veit að við eigum líka mjög fallega duftkerskirkjugarða. Það er líka heimild til að grafa duftker ofan á öðrum leiðum og ákveðnar reglur gilda um það.

Ég bara skil ekki með nokkru móti af hverju við hér eigum að banna fólki að uppfylla kannski síðustu ósk látins ættingja, sem væri t.d. að dreifa öskunni einhvers staðar og svo jarðsetja eða dreifa öskunni á fleiri en einum stað. En það erum við raunverulega að gera með þeim lögum sem eru í gildi í dag. Ég hygg að flestir þingmenn hafi orðið varir við að það tíðkast mjög í kvikmyndum að fjalla um þetta og það virðist vera mun meira frelsi í þessum málaflokkum víðast hvar annars staðar og það er ágætlega farið yfir það í greinargerðinni. Það eru alveg reglur utan um þessi mál og ég er ekkert að leggja til að það verði engar reglur. En ég skil ekki að það þurfi að vera þannig að þú þurfir að sækja sérstaklega um þetta leyfi og þá þurfi einhver sýslumaður, eitthvert embætti hins opinbera, að fara yfir það og ákveða hvort þú megir það eða ekki, auk þess sem það eru auðvitað líka mjög strangar reglur um það hverju sýslumaður má segja já við og hverju ekki. Það er því þannig að sýslumaður segir ekkert rosalega oft nei, því að fólkið sem er að sækja um að fá að dreifa ösku veit hvað má og má ekki eða fær leiðsögn um það.

Ég hef líka sagt það áður þegar ég flutti þetta mál að við vitum samt af því að það gerist hér, þrátt fyrir hvernig lögin okkar eru, að ösku sé dreift á stöðum sem lögin okkar heimila ekki án þess að leyfi sé fengið hjá sýslumanni. Það er ekki endilega vegna þess að fólk langi svo að vera lögbrjótar; fólk þekkir kannski ekki lögin. Þetta á oft við um erlenda ferðamenn og það hafa til að mynda náðst myndir af konu vera að dreifa ösku yfir Gullfoss sem má ekki. Þá var viðkomandi kona bara að uppfylla hinstu ósk látins ættingja. Ég hef meira að segja tekið eftir því, þegar maður fer á innritunarborð á flugstöðvum, hvað taka má með í handfarangri og hvað þú mátt ekki taka með. Það eru ákveðnar reglur um það. Þú mátt t.d. vera með þurrmjólk fyrir barn og þú mátt vera með lyf og eitthvað svona og þú mátt ferðast með ösku. Og það virðist vera það sem fólk gerir gjarnan þrátt fyrir að hér á Íslandi séu strangar reglur gegn því.

Virðulegur forseti. Mig langaði aðeins að nefna líka í þessu samhengi að það spannst mikil umræða um það — ég held að það hafi verið einhvern tímann á síðasta ári — þegar Kirkjugarðar Reykjavíkur breyttu lógóinu sínu og tóku út krossinn. Mörgum var mjög misboðið að það væri verið að taka krossinn út úr lógói kirkjugarðanna. Ég sé hér á heimasíðu Kirkjugarða Reykjavíkur að framtíðarsýn þeirra er að þetta séu garðar allra þeirra sem vilja kyrrð og ró í umhverfi sem einkennist af hlýju, umhyggju og kærleika, minningu um horfna ástvini og sögu samfélagsins. Það er nefnilega vegna þess að Kirkjugörðum Reykjavíkur ber einfaldlega að sinna því hlutverki að sjá til þess að hægt sé að taka leiði og grafa fólk og duftker. Það er ekkert sem segir í lögunum að þeir verði að vera tengdir kirkjunni sem slíkri þótt nafnið bendi til þess og margir vilja kannski gjarnan hafa krossinn í merki kirkjugarðanna. Já, ég óttast að ef þetta færi nú að breiða úr sér yfir landið allt, og allir kirkjugarðar færu einhvern veginn að taka þetta upp, myndi það valda lítilli hrifningu og jafnvel mjög mikilli óánægju víðast hvar.

Þá langar mig að benda á að það að samþykkja það frumvarp sem hér liggur fyrir gæti einfaldað þetta mjög að því leyti til að við séum þá bara að horfa betur til þarfa allra. Þeir sem eru kannski ekki kristnir og vilja ekki láta jarða sig í kirkjugarði velja þá kannski frekar að fara þessa leið; vilja ekki láta grafa duftker þar heldur dreifa ösku annars staðar. Nú kann það að vera svo að það séu margir kristnir sem myndu líka kjósa að vera brenndir og að ösku yrði dreift og hún jarðsett, sem er algerlega bannað í dag. Þegar ég var að vinna þetta mál á sínum tíma var ég aðeins að kanna það hvernig þessu væri háttað í nágrannalöndunum. Þar þekkist það líka einhvers staðar að það megi dreifa ösku og minnast látins ástvinar með því að setja kannski fallegt merki á tré eða bekk eða í einhverjum skógi. En það er líka alveg bannað samkvæmt þeim lögum sem við búum við í dag.

Herra forseti. Eins og ég sagði hér áðan þá hef ég lagt þetta mál oft fram og ég hef líka oft sagt það í ræðu hér að ég hef fengið mjög mörg skilaboð, í gegnum samfélagsmiðla, tölvupósta og símhringingar, í kringum framlagningu þessa máls þar sem fólk er að tjá mér svona mismunandi sögur af því hvernig þessu hefur verið farið hjá þeim. Þetta eru oft ofboðslega hjartnæmar sögur og það er stundum mjög sorglegt að hlusta á þær og heyra hvernig gömul og úrelt lög hafa einhvern veginn verið að þvælast fyrir því að fólk hafi getað uppfyllt hinstu ósk látins ættingja.

Mér hefur reyndar einnig verið bent á að það sé ýmislegt annað sem mætti taka til í varðandi lög um kirkjugarða og ég hygg að margir hér inni þekki vandamálin varðandi líkbrennsluofna, skyldur og þörf fyrir að það sé líka hægt að bjóða upp á slíka þjónustu úti á landsbyggðinni og annað þess háttar. Það er því alveg ljóst að það þarf að taka til í þessum málaflokki og það er full ástæða til þess að auka frelsi. Sú sem hér stendur aðhyllist mjög frelsi einstaklingsins og mér finnst að það eigi að ganga alveg út yfir gröf og dauða. Ég taldi mig meira að segja vera búna að ná samningum við hæstv. fyrrverandi dómsmálaráðherra — sem hafði lagt fram frumvarp um breytingar á þessum ákveðnu lögum, en aðra þætti þess, og það er reyndar frumvarp sem hefur komið allnokkrum sinnum fyrir þingið en aldrei hlotið afgreiðslu — um að kannski væri ástæða til að taka málaflokkinn aðeins heildstæðar upp og opna á aukið frelsi í þessum málum í þessum lagabálki.

Virðulegur forseti. Ég hygg að allsherjar- og menntamálanefnd muni fá þetta mál til umfjöllunar eftir að umræðu lýkur. Ég vona innilega að hv. þingmenn í þeirri nefnd taki vel í þetta mál. Það liggja fyrir ýmsar umsagnir og ég er algerlega sannfærð um að það eru margir sem eru tilbúnir til að veita jákvæða umsögn um þetta mál. Það kann líka vel að vera að þeir sem reka kirkjugarðana í dag kunni að hafa einhverja sýn á það að þetta ætti að vera með eitthvað aðeins öðrum hætti og það má alveg hlusta á þau sjónarmið. En mikið væri nú tímabært og gaman til þess að hugsa ef þetta þing gæti loksins afgreitt þetta litla mál sem gæti þó gert svo ofboðslega mikið fyrir fólk sem vill bara uppfylla hinstu ósk ættingja sinna.